Einingar tengdar almannahagsmunum

Lánastofnanir, vátryggingafélög, lífeyrissjóðir og útgefendur verðbréfa, sem hafa verðbréf sín skráð á skipulegum markaði, eru í lögum um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019 og lögum um ársreikninga nr. 3/2006 skilgreind sem einingar tengdar almannahagsmunum (e. public interest entities).[1]

Lögin undirstrika þjóðhagslegt mikilvægi slíkra eininga með því að gera auknar kröfur um áreiðanleika og óhæði endurskoðunar þeirra. Tilgangurinn er að tryggja gæði ársreikninga þeirra og annarra fjárhagsupplýsinga. Gerð er krafa um að sérstök eftirlitsnefnd, endurskoðunarnefnd, starfi hjá einingu tengdri almannahagsmunum. Stjórn ber ábyrgð á skipun endurskoðunarnefndar og skulu nefndarmenn vera óháðir endurskoðanda einingarinnar auk þess sem meirihluti nefndarmanna skal vera óháður einingunni. Endurskoðunarnefnd gegnir meðal annars því hlutverki að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila, virkni og skipulagi innra eftirlits og endurskoðun ársreikninga. Jafnframt gerir endurskoðunarnefnd tillögu til stjórnar um val á endurskoðanda og hefur eftirlit með störfum hans. Til að tryggja óhæði endurskoðunar hjá einingu tengdri almannahagsmunum er starfstíma endurskoðanda sett takmörk, gerðar eru auknar kröfur til gæðaeftirlits með störfum endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis og er þeim jafnframt skylt að birta opinberlega skýrslu um gagnsæi þar sem fram koma upplýsingar um viðkomandi endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki.

Endurskoðendur og endurskoðunarnefndir hjá einingum tengdum almannahagsmunum gegna þannig veigamiklu hlutverki við að staðreyna áreiðanleika fjárhagsupplýsinga. Slíkar upplýsingar eru mikilvægur þáttur í því að viðhalda heilbrigðum og eðlilegum fjármálamarkaði jafnframt því að efla trú fjárfesta, hluthafa og almennings á starfsemi eininganna og fjármálamarkaðnum. Áreiðanlegar fjárhagsupplýsingar styrkja auk þess eftirlit Seðlabankans með viðkomandi einingum.

Fundir með endurskoðendum

Seðlabanki Íslands skal boða til fastra funda með ytri endurskoðendum viðkomandi félaga skv. leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2015 um samskipti Seðlabankans og ytri endurskoðenda eftirlitsskyldra aðila sem jafnframt eru einingar tengdar almannahagsmunum m.a. með tilliti til stærðar, umfangs reksturs og kerfislegs mikilvægis. Í tilmælunum kemur fram að við upphaf og lok endurskoðunar hjá félögum sem falla undir tilmælin boði Seðlabankinn til fastra funda með ytri endurskoðendum viðkomandi félaga. Tilgangur fundanna er að stuðla að bættu eftirliti og endurskoðun og auka flæði upplýsinga á milli Seðlabankans og ytri endurskoðenda eininga tengdra almannahagsmunum.

Með vísan til framangreinds og greinar 1.1.1 í tilmælunum ráðgerir Seðlabankinn að funda árlega með ytri endurskoðendum Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankans hf. og að jafnaði annað hvert ár með ytri endurskoðendum lífeyrissjóðanna Gildis-lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs verslunarmanna og vátryggingafélaganna Sjóvá-Almennra trygginga hf., TM hf. og Vátryggingafélags Íslands hf. Fundað verður með ytri endurskoðendum smærri aðila ef tilefni er til.



[1] Viðskiptabankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki teljast lánastofnanir, sbr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Önnur fjármálafyrirtæki en lánastofnanir teljast einingar tengdar almannahagsmunum ef þau eru með verðbréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica