Starfsemi erlendra aðila á Íslandi

Aðilar sem hafa hlotið staðfestu og starfsleyfi fyrir fjármálastarfsemi í öðrum ríkjum á Evrópska Efnahagssvæðisins (EES), er heimilt að starfa hér á landi með eða án stofnunar útibús. Starfsemi þeirra getur þó ekki hafist fyrr en að Seðlabanki Íslands hefur fengið tilkynningu þar að lútandi frá eftirlitsaðila í heimaríki fyrirtækisins. Á þetta við um fjármálafyrirtæki (lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki), rafeyrisfyrirtæki, greiðslustofnanir, vátryggingafélög- og miðlara, rekstrarfélög verðbréfasjóða, rekstraraðila sérhæfðra sjóða og skráða lánveitendur.

 

Erlendir aðilar með staðfestu á Íslandi

Erlendur aðili  Útibú/umboðsaðili/dreifingaraðili/einka-
umboðsmaður 
Nafn  Heimilisfang   Tegund þjónustu  
Allianz Lebensversicherungs AG Alexandra Muenchmeier er í fyrirsvari fyrir félagið og hefur heimild til að skuldbinda það gagnvart þriðja aðila og koma fram á þess vegum gagnvart stjórnvöldum í aðildarríkinu, sbr. 3. tl. 2. mgr. 124. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi. Allianz Ísland hf. Dalshrauni 3, 220 Hafnarfjörður  Líftryggingar, gr. II og III.  
Allianz Versicherungs AG Alexandra Muenchmeier er í fyrirsvari fyrir félagið og hefur heimild til að skuldbinda það gagnvart þriðja aðila og koma fram á þess vegum gagnvart stjórnvöldum í aðildarríkinu, sbr. 3. tl. 2. mgr. 124. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi. Allianz Ísland hf. Dalshrauni 3, 220 Hafnarfjörður Skaðatryggingar, greinafl. 13, 16  
Western Union Payment Services Ireland Limited Umboðsaðili greiðslustofnunar IcePhone ehf. Bugðutanga 32, 270 Mosfellsbæ Peningasendingar (Money remittance)  
Western Union Payment Services Ireland Limited Umboðsaðili greiðslustofnunar Íslandspóstur ohf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík

Peningasendingar (Money remittance)

 
American Express Payments Europe S.L. Umboðsaðili greiðslustofnunar Teya Iceland hf. Katrínartúni 4, 105 Reykjavík Færsluhirðing (Acquiring of payment transactions)  
American Express Payments Europe S.L.   Umboðsaðili greiðslustofnunar  Rapyd Europe hf.  Dalshrauni 3, 220 Hafnarfjörður  Færsluhirðing (Acquiring of payment transactions)  
 PM-Premium Makler GmbH Útibú vátryggingamiðlara
Gestur Breiðfjörð Gestsson er í fyrirsvari fyrir útibúið
PM-Premium Makler GmbH, útibú á Íslandi Garðatorgi 7,
210 Garðabær
Dreifing vátrygginga  
 Nasdaq CSD SE Útibú verðbréfamiðstöðvar Nasdaq CSD SE, útibú á Íslandi  Laugavegi 182, 105 Reykjavík  Starfræksla verðbréfauppgjörskerfis  
Arena Wealth Management S.A. Útibú verðbréfafyrirtækis
Sigvaldi Stefánsson er í fyrirsvari fyrir útibúið.
Arena Wealth Management S.A., útibú á Íslandi Hellusundi 6, 101 Reykjavík Móttaka og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina, eignastýring og fjárfestingarráðgjöf.  
 Arena Wealth Management S.A. Einkaumboðsmaður
Bjarni Brynjólfsson er í fyrirsvari fyrir Arngrimsson Advisors ehf.
Arngrimsson Advisors ehf. Austurstræti 18,
101 Reykjavík
Móttaka og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga og fjárfestingarráðgjöf  
 Howden Finland Oy Útibú vátryggingamiðlara. Bjarni Ólafsson er í fyrirsvari fyrir útibúið. Howden Finland Oy, útibú á Íslandi Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík Dreifing vátrygginga  

Erlendir verðbréfasjóðir með staðfestu innan EES

Samkvæmt 103. gr. laga nr. 116/2021 er heimilt að markaðssetja hér á landi verðbréfasjóð með staðfestu og staðfestingu í öðru ríki innan EES.

Sérhæfðir sjóðir með staðfestu utan EES

Samkvæmt 63. gr. laga nr. 45/2020 er rekstraraðilum með staðfestu og starfsleyfi innan EES heimilt að markaðssetja til fagfjárfesta hér á landi sérhæfða sjóði með staðfestu utan EES að fenginni heimild Seðlabanka Íslands.

Samkvæmt 64. gr. sömu laga er skráðum rekstraraðilum með staðfestu hér á landi heimilt að markaðssetja til fagfjárfesta hér á landi sérhæfðan sjóð með staðfestu utan EES að fenginni heimild Seðlabanka Íslands. Þá er rekstraraðila með staðfestu utan Íslands, þar á meðal skráningarskyldum rekstraraðila innan EES, heimilt að markaðssetja sérhæfðan sjóð hér á landi til fagfjárfesta að fenginni heimild Seðlabanka Íslands.

Erlend vátryggingafélög

 

  • Listi yfir erlend vátryggingafélög sem hafa tilkynnt að þau munu veita þjónustu hér á landi án starfsstöðvar eða setja upp útibú.

 


[1] Fyrirvari - leitarvélin inniheldur ekki upplýsingar um:

  • Starfsheimildir verðbréfafyrirtækja sem hafa tilkynnt um veitingu þjónustu hér á landi á grundvelli MiFID (Markets in Financial Instruments Directive)
  • Sjóði markaðssetta hér á landi af erlendum rekstrarfélögum, hvort sem er rekstrarfélög verðbréfasjóða eða rekstraraðila sérhæfðra sjóða
Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica