Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstöður athugunar hjá Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankanum hf. á tilteknum þáttum í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

10.11.2014

Hinn 21. maí 2014 hóf Fjármálaeftirlitið athugun hjá Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Landsbankanum hf. (hér eftir bankarnir). Athugunin beindist að tilteknum þáttum í aðgerðum bankanna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 64/2006. Í athuguninni var lögð sérstök áhersla á könnun bankanna á áreiðanleika upplýsinga um viðskiptamenn sína í tengslum við fjarsölu, einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og millibankaviðskipti. Auk þess var þjálfun starfsmanna, skýrsla ábyrgðarmanns, úttektir endurskoðunardeildar og verklag og ferlar í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, tekin til skoðunar.

Gagnsaeistilkynning---Peningatvaetti-10-11-2014

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica