Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á mati á hæfi og tilhlýðileika fjármálaþjónustu Arctica Finance hf.

27.1.2017

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á mati Arctica Finance hf. á hæfi viðskiptavina sinna vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar og tilhlýðileika fjármálaþjónustunnar þann 6. maí 2016. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort verklag og eftirlit verðbréfafyrirtækisins í tengslum við öflun upplýsinga um viðskiptavini sína og ráðleggingar til þeirra vegna eignastýringar og veittrar fjárfestingarráðgjafar væri í samræmi við 15. og 16. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.), sbr. 35. og 36. gr. reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskipti fjármálafyrirtækja.
Gagnsaei-Arctica-27012017  

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica