Ákvarðanir og gagnsæi


Niðurstaða athugunar á aðskilnaði starfssviða hjá Landsbankanum hf.

17.8.2015

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á aðskilnaði starfssviða hjá Landsbankanum hf. í lok árs 2014.  Markmið athugunarinnar var að kanna hvort aðskilnaður starfssviða hjá bankanum væri í samræmi við kröfur 8. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og 4. þáttar reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, sem Fjármálaeftirlitið hefur útfært nánar í leiðbeinandi tilmælum nr. 4/2014 um aðskilnað starfssviða. Athugunin beindist að aðskilnaði starfssviða í húsnæði bankans, aðskilnaði í stjórnun og  aðskilnaði gagna.  Að auki voru reglur, stefnur og önnur skjöl bankans þessu tengd skoðuð. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í maí 2015.
GagnsaeistilkynningLandsbankinn---17-8-2015

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica