Fréttir


Fjármálaeftirlitið birtir ársreikninga og upplýsingar um afkomu vátryggingagreina hjá íslenskum vátryggingafélögum

28.6.2016

Fjármálaeftirlitið hefur birt ársreikninga og upplýsingar um afkomu vátryggingagreina hjá íslenskum vátryggingafélögum fyrir reikningsárið 2015 með samræmdri uppsetningu. Birtir eru rekstrar- og efnahagsreikningar, ásamt sjóðsstreymi. Í þeim tilvikum sem vátryggingafélag er hluti af samstæðu eru birtir móðurfélagsreikningar.

Ársreikningar vátryggingafélaga eru almenningi aðgengilegir samkvæmt 3. mgr. 56. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010 en þar segir: „Ársreikningur ásamt skýrslu stjórnar skal liggja frammi til afhendingar á afgreiðslustað vátryggingafélags eftir samþykkt hans á aðalfundi‟.

Ársreikningar eru gerðir á ábyrgð vátryggingafélags. Samræming í uppsetningu ársreikninga í þessari útgáfu felst í heitum, röð og formerkjum liða. Birtingin felur ekki endilega í sér að Fjármálaeftirlitið samþykki reikningsskilahætti og matsaðferðir í öllum tilvikum. Vera kann að einhverjir þættir einstakra reikninga gefi tilefni til fyrirspurna og jafnvel athugasemda af hálfu Fjármálaeftirlitsins, án þess að það leiði til þess að gera þurfi breytingar á þegar útgefnum reikningum.

Í ársbyrjun 2015 báru 12 íslensk vátryggingafélög virka vátryggingaráhættu. Þau eru:

  • Íslensk endurtrygging hf.
  • Líftryggingafélag Íslands hf.
  • Líftryggingamiðstöðin hf.
  • Okkar líftryggingar hf.
  • Sjóvá-Almennar líftryggingar hf.
  • Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
  • Trygging hf.
  • Tryggingamiðstöðin hf.
  • Viðlagatrygging Íslands
  • Vátryggingafélag Íslands hf.
  • Vörður líftryggingar hf.
  • Vörður tryggingar hf.

Íslensk endurtrygging hf. og Trygging hf. vinna eingöngu að uppgjöri eldri skuldbindinga vegna endurtrygginga. Félögin eru dótturfélög í 100% eigu Tryggingamiðstöðvarinnar hf.

Að öðru leyti vísast til umfjöllunar um vátryggingamarkaðinn í nýútkominni ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica