Fréttir


Fjármálaeftirlitið kynnir nýjar kröfur til vátryggingafélaga um opinbera birtingu upplýsinga

1.11.2016

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á kynningarfundi vegna Solvency II sem haldinn verður frá klukkan níu til ellefu fimmtudaginn 3. nóvember næstkomandi í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins. Þar verður meðal annars fjallað um þær kröfur sem fylgja Solvency II um innihald og framsetningu skýrslu vátryggingafélaga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) og skýrslu til eftirlitsaðila (RSR).

Fundurinn er einkum ætlaður fulltrúum vátryggingafélaganna, ytri og innri endurskoðendum þeirra sem og öðrum sem áhuga kunna að hafa svo sem greiningaraðilum.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica