Fréttir


Breyting á félagaformi Sparisjóðs Norðfjarðar ses.

22.4.2015

Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 16. apríl 2015 samruna Sparisjóðs Norðfjarðar ses. við Sparisjóð Austurlands hf. en með samrunanum var rekstrarformi Sparisjóðs Norðfjarðar ses. breytt úr sjálfseignarstofnun í hlutafélag samkvæmt  73. gr., sbr. 3. mgr. 72. gr. og 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Við framangreinda breytingu hélt starfsleyfi sparisjóðsins gildi sínu og Sparisjóður Austurlands hf. tók við rekstri sparisjóðsins, öllum eignum hans og skuldum, réttindum og skuldbindingum og sjálfseignarstofnuninni var slitið. Samruninn mun ekki hafa áhrif á greiðslustað skuldaskjala.

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica