Útgefið efni

14.6.2013 : Niðurstöður athugunar á eftirliti með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Íslandsbanka hf.

Hinn 7. janúar 2013 framkvæmdi Fjármálaeftirlitið vettvangsathugun hjá Íslandsbanka hf. Athugunin beindist að tilteknum þáttum er varða eftirlit Íslandsbanka með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. lög nr. 64/2006. Í athuguninni var lögð sérstök áhersla á áreiðanleikakannanir Íslandsbanka við upphaf viðskipta sem og viðvarandi eftirlit með lögaðilum.
Lesa meira

14.6.2013 : Starf skjalastjóra laust til umsóknar

Fjármálaeftirlitið leitar að öflugum skjalastjóra til að leiða uppbyggingu og þróun skjalamála og stýra teymi í skjala- og ritaraþjónustu.  Auglýsingu um starfið má sjá hér. Lesa meira

14.6.2013 : Ný gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins

Ný gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins nr. 555/2013 hefur tekið gildi. Gjaldskráin var birt í vefútgáfu Stjórnartíðinda þann 13. júní 2013 sem má nálgast hér.
Lesa meira

14.6.2013 : Hilmar Hansson hæfur til að fara með virkan eignarhlut í ARM Verðbréfum hf.

Hinn 7. júní sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Hilmar Hansson, kt. 210149-7919, væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut sem nemur allt að 50% í ARM Verðbréfum hf., sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Lesa meira



Language


Útlit síðu: