Gjaldskrár Fjármálaeftirlitsins
Gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins fyrir nauðsynlegt umframeftirlit og aðrar sértækar aðgerðir, nr. 900, dags. 10. nóvember 2010
Gjaldskráin gildir um greiðslu kostnaðar vegna eftirlits með einstökum eftirlitsskyldum aðilum, sem telst umfram reglubundið eftirlit, samkvæmt ákvörðun stjórnar Fjármáleftirlitsins, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999. Fjármálaeftirlitið tilkynnir viðkomandi um ákvörðun slíkra gjalda.
Gjaldskráin gildir einnig um fastagjöld umsókna um starfsleyfi eftirlitsskyldra aðila, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 99/1999 og greiðslu kostnaðar fyrir afgreiðslu og skráningu nánar tilgreindra sértækra staðfestinga og mats sem leiðir af starfsemi Fjármálaeftirlitsins, en telst ekki þáttur í reglubundnu eftirliti, sbr. 3. mgr. 7. gr. laganna. Fjármálaeftirlitið upplýsir aðila um gjaldtöku með vísan til 2. og 3. mgr. 7. gr. laganna.
Smelltu hér til að nálgast gjaldskrána
Gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins fyrir athugun á útboðslýsingu í almennu útboði verðbréfa, nr. 134, dags. 27. janúar 2009
Gjaldskráin gildir um þóknun fyrir athugun Fjármálaeftirlitsins á útboðslýsingu vegna almenns útboðs, sbr. 3. mgr. 52. gr. IV. kafla laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Smelltu hér til að nálgast gjaldskrána.
Gjaldskrá Fjármálaeftirlitsins vegna afgreiðslu umsókna og útgáfu leyfa skv. 30. gr. laga nr. 11/2008, nr. 431, dags. 18. apríl 2008
Gjaldskráin gildir um greiðslu á kostnaði Fjármálaeftirlitsins við afgreiðslu umsóknar og útgáfu leyfis samkvæmt lögum nr. 11/2008, um sértryggð, skuldabréf.
Smelltu hér til að nálgast gjaldskrána.
