Engir listar fundust á bakvið þessa kennitölu.
Fruminnherjar eru þeir sem starfs eða stöðu sinnar vegna má ætla að búi yfir innherjaupplýsingum um útgefendur fjármálagerninga sem skráðir eru á markaði.
Fruminnherji skal áður en hann, eða aðili fjárhagslega tengdur honum, á viðskipti með fjármálagerninga útgefandans, tilkynna það regluverði útgefanda. Fruminnherji skal með sama hætti tilkynna án tafar hafi hann eða aðili fjárhagslega tengdur honum átt viðskipti með fjármálagerninga útgefandans. Viðkomandi útgefandi skal samdægurs tilkynna um viðskiptin til Fjármálaeftirlitsins. Sama gildir um fyrirhuguð viðskipti með aðra fjármálagerninga sem tengdir eru fjármálagerningum útgefanda, s.s. kaupréttarsamninga og afleiður.
Samkvæmt 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti skal Fjármálaeftirlitið gera opinberar upplýsingar um fruminnherja með birtingu fruminnherjaskrár: Listinn er birtur hér að neðan.
| Fruminnherjalistar | Dagsetning lista |
|---|---|