Upplýsingaskylda útgefenda og flagganir

Útgefendur verðbréfa eru eftirlitsskyldir aðilar á grundvelli 2. mgr. 2. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998. Þeir eru því undir eftirliti Seðlabanka Íslands, en þó ekki með sama hætti og aðilar sem stunda leyfisskylda starfsemi. Útgáfa verðbréfa er háð ýmsum lagaskilyrðum sem Seðlabankinn hefur eftirlit með að útgefendur uppfylli. Þá leggja lög og reglur ýmsar skyldur á herðar útgefendum til að tryggja jafnræði fjárfesta og jafnan aðgang þeirra að upplýsingum.

Upplýsingaskylda útgefenda

Útgefandi verðbréfa skal birta almenningi á Evrópska efnahagssvæðinu eins fljótt og auðið er og á jafnræðisgrundvelli þær upplýsingar sem fjallað er um í lögum nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu. Aðilar eiga því allir að búa yfir sömu upplýsingum.

Þetta eru t.a.m. upplýsingar sem teljast til reglulegra upplýsinga útgefanda (t.d. birting ársreiknings, árshlutareiknings) sem og aðrar upplýsingar sem útgefanda ber að veita og eru tilgreindar sérstaklega í lögum.

Auk þess skal útgefandi birta á sama hátt breytingar á verulegum hlut atkvæðisréttar, hinar svokölluðu flöggunartilkynningar. Sá aðili sem er flöggunarskyldur skal senda tilkynningu til viðkomandi útgefanda og Seðlabankans innan tilgreinds tímafrests.

Með lögum nr. 20/2021 voru frestir til að senda flöggunartilkynningar lengdir. Eftir breytinguna verður fjárfestir sem er flöggunarskyldur að senda útgefanda tilkynningu eins fljótt og auðið er, en eigi síðar en fjórum viðskiptadögum eftir að skyldan stofnast. Útgefandanum ber að birta flöggunartilkynninguna eins fljótt og auðið er, en eigi síðar en þremur viðskiptadögum eftir að tilkynning berst honum.

Lög nr. 20/2021 setja einnig þá skyldu á útgefendur að birta ársreikninga sína á sameiginlegu rafrænu skýrslusniði, sbr. 1. mgr. 6. gr. laganna.

Gagnlegir tenglar

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica