Neytendavernd
Eftirlit Fjármálaeftirlitsins miðar að því að viðhalda styrk og öryggi einstakra eftirlitsskyldra aðila og varðveita fjármálastöðugleika og trúverðugleika fjármálamarkaðarins. Samhliða og nátengt hlutverk Fjármálaeftirlitsins er að hafa eftirlit með viðskiptaháttum gagnvart neytendum fjármálaþjónustu.
Góðir viðskiptahættir og venjur
Fjármálaeftirlitið fylgist með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti. Þannig stuðlar Fjármálaeftirlitið að því að hagsmunir viðskiptavini eftirlitsskyldra aðila séu tryggðir.
Upplýsinga- og leiðbeiningaþjónusta
Fjármálaeftirlitið veitir viðskiptavinum eftirlitskyldra aðila upplýsingar og leiðbeiningar í síma 520 3700 á þriðjudögum kl. 10-11 og fimmtudögum kl. 14-15. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fyrirspurn (hjá) fme (.) is
Úrskurðanefndir
Fjármálaeftirlitið vistar úrskurðanefnd í vátryggingamálum og úrskurðanefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Fjármálaeftirlitið tekur við málskotum neytenda, sér nefndunum fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir þær.
