Eftirlitsskyld starfsemi

Seðlabanki Íslands skal fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir og reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.

Seðlabankinn hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði, sbr. 2. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Eftirlitsskyld starfsemi

 Viðskiptabankar  Lög nr. 161/2002      
 Sparisjóðir Lög nr. 161/2002      
 Lánafyrirtæki (fjárfestingarbankar) Lög nr. 161/2002      
 Verðbréfafyrirtæki Lög nr. 161/2002 Lög nr. 115/2021    
 Rekstrarfélög verðbréfasjóða Lög nr. 116/2021      
 Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða Lög nr. 45/2020      
 Verðbréfasjóðir Lög nr. 116/2021      
 Sérhæfðir sjóðir Lög nr. 45/2020      
 Peningamarkaðssjóðir Lög nr. 6/2023      
 Evrópskir áhættufjármagnssjóðir og evrópskir félagslegir framtakssjóðir Lög nr. 31/2022      
 Evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir Lög nr. 115/2022      
 Útgefendur sértryggðra skuldabréfa Lög nr. 11/2008      
 Stjórnendur fjárhagslegra viðmiðana Lög nr. 7/2021      
 Lánshæfismatsfyrirtæki Lög nr. 50/2017      
 Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja Lög nr. 98/1999      
 Vátryggingafélög Lög nr. 100/2016      
 Eignarhaldsfélög, vátryggingasamstæður og fjármálasamsteypur Lög nr. 161/2002 Lög nr. 60/2017  Lög nr. 61/2017  
 Vátryggingamiðlarar og aðrir dreifingaraðilar Lög nr. 62/2019      
 Kauphallir og skipulegir markaðir Lög nr. 115/2021      
 Verðbréfamiðstöðvar Lög nr. 7/2020      
 Lífeyrissjóðir og vörsluaðilar lífeyrissparnaðar Lög nr. 129/1997      
 Innheimtuaðilar Lög nr. 95/2008      
 Greiðslustofnanir og aðrir greiðsluþjónustuveitendur Lög nr. 114/2021 Lög nr. 5/2023 Lög nr. 31/2019 Lög nr. 78/2014
 Rafeyrisfyrirtæki Lög nr. 17/2013      
 Gjaldeyrisskiptastöðvar Lög nr. 140/2018      
 Þjónustuveitendur sýndareigna Lög nr. 140/2018      
 Útibú erlendra fyrirtækja sem staðsett eru á Íslandi og falla undir a–e-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018 Lög nr. 140/2018      
 Umboðs- og dreifingaraðilar fyrirtækja og samsvarandi erlendra fyrirtækja með starfsemi hér á landi sem falla undir a–e-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018 Lög nr. 140/2018      
 Lánveitendur og lánamiðlarar Lög nr. 118/2016      
 Lánveitendur og lánamiðlarar samkvæmt lögum nr. 33/2013, um neytendalán, sem falla undir a-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018 Lög nr. 140/2018      

Eftirlit á verðbréfamarkaði

Þá hefur Seðlabankinn einnig eftirlit með:

 Yfirtökum á útgefendum hvers verðbréf hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði Lög nr. 108/2007
 Veitingu fjárfestingarþjónustu og ástundun fjárfestingarstarfsemi hér á landi Lög nr. 115/2021
 Skortsölu og skuldatryggingum Lög nr. 55/2017
 Afleiðuviðskiptum, miðlægum mótaðilum og afleiðuviðskiptaskrám Lög nr. 15/2018
 Markaðssvikum Lög nr. 60/2021
 Upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu Lög nr. 20/2021
 Fjármögnunarviðskiptum með verðbréf Lög nr. 41/2023
 Lýsingum verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði Lög nr. 14/2020

Annað eftirlit

Jafnframt hefur Seðlabankinn m.a. eftirlit með:

 Vátryggingasamningum Lög nr. 30/2004 
 Fjarsölu á fjármálaþjónustu Lög nr. 33/2005
 Lykilupplýsingaskjölum vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta Lög nr. 55/2021
 Upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar Lög nr. 25/2023

Eftirlit með slitastjórnum

Seðlabankinn hefur sérstakt eftirlit með slitum fjármálafyrirtækja sem stýrt er af slitastjórnum, óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki sé með starfsleyfi, hafi takmarkað starfsleyfi eða starfsleyfið hafi verið afturkallað, sbr. 101. gr. a laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hérlendis

Um eftirlit með starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hér á landi gilda ákvæði sérlaga og alþjóðasamningar sem Ísland er aðili að. Sjá nánar um starfsemi erlendra aðila á Íslandi.

 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica