Eftirlitsskyldir aðilar
Aðilar sem stunda leyfisskylda fjármálastarfsemi lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins og eru kallaðir eftirlitsskyldir aðilar. Eftirlitsskyldir aðilar eru m.a. bankar, sparisjóðir, lánastofnanir, verðbréfafyrirtæki, vátryggingafélög, lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og rekstrarfélög verðbréfasjóða svo eitthvað sé nefnt.
Fjármálaeftirlitið hefur það hlutverk að veita eftirlitsskyldum aðilum uppbyggilegt og markvisst aðhald og styðja við mótun á skilvirkri og traustri starfsemi eftirlitsskyldra aðila, þar sem áhersla er lögð á að fylgjast með að starfsemi þeirra sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur og samþykktir sem um starfsemina gilda og sé að öðru leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um þá aðila er lúta eftirliti Fjármálafyrirtækisins.
