Ábending
Ef þú hefur orðið var við hugsanlegt brot á lögum, reglum, heilbrigðum eða eðlilegum viðskiptaháttum getur þú nýtt þér ábendingargluggann hér að neðan til að senda inn ábendingu til Fjármálaeftirlitsins, nafnlaust eða undir nafni. Fjármálaeftirlitið mælist þó til þess að komið sé fram undir nafni.
Ábendingar nýtast Fjármálaeftirlitinu við að sinna almennu eftirlitshlutverki sínu. Mikilvægt er að Fjármálaeftirlitinu berist gögn er styðja ábendinguna, ef þau eru fyrir hendi. Þannig er hægt að ganga úr skugga um hvort viðkomandi eftirlitsskyldur aðili fari að lögum og reglum, og stundi heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.
Allar ábendingar sem berast Fjármálaeftirlitinu eru metnar sérstaklega og skoðað hvort tilefni er til nánari athugunar. Telji eftirlitið ástæðu til að taka mál til athugunar er það gert á grundvelli almenns eftirlits, þ.e. hvort starfsemi viðkomandi eftirlitsskylds aðila sé í samræmi við lög, reglur og eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Þrátt fyrir að ábending leiði til slíkrar athugunar, telst sá sem ábendinguna veitti ekki sjálfkrafa aðili máls og getur Fjármálaeftirlitið ekki veitt viðkomandi upplýsingar um stöðu rannsóknar eða þróun mála. Þá er ekki víst að slík athugun leiði sjálfkrafa til lausnar á úrlausnarefni viðkomandi aðila. Þeir sem beina ábendingum til eftirlitsins eiga ekki sjálfkrafa rétt á því að ábendingar þeirra verði teknar til meðferðar. Ákvörðun um slíkt er ávallt í hendi Fjármálaeftirlitsins.
Má koma með nafnlausar ábendingar?
Fólk er hvatt til þess að koma fram undir réttu nafni, en Fjármálaeftirlitið tekur þó einnig við nafnlausum ábendingum. Einnig óskar Fjármálaeftirlitið eftir upplýsingum svo það geti haft samband við viðkomandi að nýju, ef nauðsyn krefur.
Ríkir nafnleynd um þá sem veita ábendingar?
Fjármálaeftirlitið leggur áherslu á trúnað við þá sem koma fram með ábendingar. Fjármálaeftirlitið g etur þó ekki ábyrgst nafnleynd, ef lög mæla fyrir um annað. Þess skal getið að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins eru bundnir ríkri trúnaðarskyldu um allt það sem þeir komast að í störfum sínum.