This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

Fyrirspurnir um aðgerðir Fjármálaeftirlitsins (FME) vegna ástands á fjármálamörkuðum

Til hvaða aðgerða hefur FME gripið?
Á grundvelli nýsettra laga hefur FME gripið inn í rekstur Landsbanka Íslands hf., Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf. til að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi á Íslandi.

Aðgerðirnar eru gerðar til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands og öryggi innstæðna á Íslandi.

Frekari upplýsingar og lögin er hægt að nálgast hér: http://www.vidskiptaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/2799

Nægja þessar aðgerðir til að tryggja stöðugleika?
FME hefur gripið til og mun halda áfram að grípa til þeirra ráðstafana sem það telur nauðsynlegar til að tryggja stöðugleika við þær aðstæður sem skapast hafa á fjármálamarkaði.  Eru slíkar ráðstafanir metnar jafnóðum eftir því hvernig aðstæður þróast. 

Eru frekari aðgerðir FME framundan?
Það er mat FME að þessar aðgerðir séu nauðsynleg fyrstu skref til þess að ná markmiðum nýsettra laga og til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands og öryggi innstæðna á Íslandi.

Heimildir eru til frekari aðgerða og verða þær heimildir nýttar eftir þörfum hverju sinni. Sú staða sem hefur komið upp á fjármálamarkaði kallar á aðgerðir og samspil margra aðila, jafnt aðila á fjármálamarkaði sem aðila innan stjórnsýslunnar.

Eru íslenskir bankar gjaldþrota?
Nei, enginn íslenskur banki er gjaldþrota.

FME hefur ákveðið að nýta heimild Alþingis með vísan til nýrra laga, um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði. FME hefur skipað skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar Landsbankans, Glitnis og Kaupþings.

Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi?
Aðgerðir FME miða að því að tryggja að íslensk heimili og fyrirtæki hafi aðgang að nauðsynlegri þjónustu og starfsemi banka. 


 

Aðrar gagnlegar upplýsingar

Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta: www.tryggingarsjodur.is
Á vefsíðu Tryggingarsjóðs má meðal annars finna svör við algengum spurningum á www.tryggingarsjodur.is/SS/

Forsætisráðuneytið: http://www.forsaetisraduneyti.is/

Viðskiptaráðuneytið: http://www.vidskiptaraduneyti.is/

Seðlabankinn: http://sedlabanki.is/

Félags- og tryggingamálaráðuneytið : http://www.felagsmalaraduneyti.is/upplysingar

Heilbrigðisráðuneytið: http://www.heilbrigdisraduneyti.is/malaflokkar/Heilbrigdistjonusta/

Rauði krossinn: http://www.redcross.is/

Landspítalinn: http://www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmlpages/index.html

Almennur fyrirvari og höfundarréttur

Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykavík - Sími: +354 520 3700 - Fax: +354 520 3727 - E-mail: fme@fme.is
Opið virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli