Markaður með fjármálagerninga (MiFID): leiðarvísir fyrir neytendur.
Samstarfsnefnd eftirlitsaðila á evrópskum verðbréfamörkuðum (CESR) hefur gefið út leiðarvísir fyrir neytendur þar sem fjallað er um áhrif nýrrar evrópskrar lagasetningar á fjármálamarkaðinn en Mifid tilskipunin (e. Markets in Financial Instruments Directive) tók gildi 1. nóvember sl. Í reglugerð nr. 994/2007 eru tilgreindar skyldur fjármálafyrirtækja varðandi skýrsluhald, tilkynningar um viðskipti, gagnsæi á markaði, töku fjármálagerninga til viðskipta og hugtök sem eru skilgreind að því er varðar þá tilskipun.
Markmið MiFID er að vernda viðskiptavini fjármálafyrirtækja. Í tilskipuninni eru meginreglur um viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, sem innihalda m.a. reglur um að fjármálafyrirtæki skuli við framkvæmd viðskipta tryggja að viðskiptavinurinn fái bestu mögulegu niðurstöðu miðað við aðstæður, þ.e. reglur um bestu framkvæmd (e. Best execution). Innleiðing MiFID tilskipunarinnar mun hafa í för með sér að almennir fjárfestar fá meiri upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum. Markmiðið með því er að gera þá betur í stakk búna til að taka upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar.
Nánar er fjallað um áhrif MiFID á neytendur í meðfylgjandi upplýsingariti, á íslensku og á ensku.