This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

Fjármálaeftirlitið vekur athygli á að Samstarfsnefnd eftirlitsaðila á evrópskum verðbréfamörkuðum, CESR (Committee of European Securities Regulators), hefur birt lista yfir seljanleika þeirra hlutabréfa sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað innan Evrópska efnahagssvæðisins, í samræmi við MiFID tilskipunina (nr. 2004/39/EC, frá 21. apríl 2004).

Samkvæmt MiFID innleiðingarreglugerðinni (nr. 1287/2006, frá 10. ágúst 2006) ber viðeigandi lögbæru yfirvaldi að reikna út og birta upplýsingar um öll hlutabréf sem hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. CESR hefur nú safnað þessum upplýsingum saman og birt á gagnagrunnsformi.

Upplýsingarnar í gagnagrunninum gera markaðsaðilum m.a. kleift að greina seljanleika hlutabréfa, en slíkt er nauðsynlegt vegna skyldu innmiðlara til að birta bindandi verðtilboð í hlutabréf sem teljast seljanleg (sbr. 27. gr. MiFID tilskipunarinnar og 28. gr. verðbréfaviðskiptalaga nr. 108/2007). Þá munu upplýsingarnar einnig gera markaðsaðilum kleift að greina þær lotustærðir sem eru undanþegnar frá kröfum um gagnsæi fyrir viðskipti, eða þær lotustærðir sem geta fengið frestun á gagnsæisskyldu, eftir viðskipti.

Í gagnagrunninum má einnig nálgast lista yfir skipulega markaði, innmiðlara, miðlæga gagnaðila og markaðstorg.

  • Gagnagrunnur CESR um seljanleika hlutabréfa  
  • Gagnagrunnur um seljanleika hlutabréfa – aðferðarlýsing
  • Almennur fyrirvari og höfundarréttur

    Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykavík - Sími: +354 520 3700 - Fax: +354 520 3727 - E-mail: fme@fme.is
    Opið virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli