Tilkynningakerfi um viðskipti með skráða fjármálagerninga
Samkvæmt ákvæði 25. gr. MiFID tilskipuninni ber aðildarríkjunum að tryggja að viðeigandi úrræði séu til staðar til að fjármálaeftirlit í viðkomandi löndum geti fylgst með starfsemi fjármálafyrirtækja til að ganga úr skugga um að þau starfi á sanngjarnan, heiðarlegan og faglegan hátt.
Skilvirkt eftirlit og samstarf eftirlitsaðila
Markmið ákvæðisins er að tryggja skilvirkt eftirlit og nánara samstarf á milli eftirlitsaðila í Evrópu.
Til að ná því markmiði mælir ákvæðið fyrir um að lögbæru yfirvöldin afli og skiptist á upplýsingum um viðskipti með fjármálagerninga sem samþykktir hafa verið til viðskipta á skipulegum markaði.
Þetta felur í sér að fjármálafyrirtæki sem hafa milligöngu um viðskipti með skráða fjármálagerninga verða að tilkynna um viðskiptin til hins lögbæra yfirvalds fyrir lok næsta viðskiptadags. Að auki ber þeim að varðveita viðeigandi gögn sem viðskiptunum tengjast í 5 ár.
Með eftirliti með þessum tilkynningum ber eftirlitunum m.a. að ganga úr skugga um að fjármálafyrirtækin eigi viðskipti á heiðarlegan, sanngjarnan og faglegan hátt, sem stuðlar að trúverðugleika markaðarins.
Ákvæðið leggur auknar skyldur á lögbær yfirvöld um skilvirkt eftirlit og öflugt samstarf á milli eftirlitsaðila. Ekki er lengur fullnægjandi að eftirlitin afli upplýsinga um tiltekin viðskipti samkvæmt beiðni annars eftirlitsaðila hverju sinni, heldur ber þeim að hafa upplýsingarnar tiltækar þegar beiðni berst, eða þegar um félag er að ræða sem skráð er í tveimur eða fleiri ríkjum, að senda upplýsingarnar jafnóðum til lögbærs yfirvalds í viðkomandi ríki. Þessi skylda hafði í för með sér að FME þurfti að ráðast í smíði tölvukerfis sem gæti uppfyllt kröfur MiFID. FME er þátttakandi í samstarfi Norðurlandanna og Litháen um smíði kerfisins.
Kerfið felur í sér tvo meginþætti:
Tilkynningakerfi: Tæki til að móttaka og varðveita upplýsingar um viðskipti frá fjármálafyrirtækjum. Kerfið er einnig notað til að skiptast á upplýsingum við erlenda eftirlitsaðila.
Úrvinnslukerfi: Búnað til þess að greina upplýsingarnar sem safnað er í kerfið með það fyrir augum að uppgötva hugsanleg brot á ákvæðum tilskipunarinnar (besta framkvæmd, fjárfestavernd). FME hefur hugsað sér að nýta kerfið einnig til eftirlits með öðrum ákvæðum laganna, s.s. markaðsmisnotkun og innherjaviðskiptum.
Þær upplýsingar sem tilkynna ber, eru að mestu leyti þær sömu og þegar tilkynnt er um viðskipti til kauphalla. FME leggur áherslu á að upplýsingar um auðkenni viðskiptamanns verði einnig tilkynntar í kerfið, enda er það lykilatriði ef kerfið á að gagnast sem öflugt rafrænt eftirlitskerfi, og gera FME þannig kleift að uppfylla kröfur tilskipunarinnar.
Nánari upplýsingar gefa Ómar Þór Ómarsson omar@fme.is vegna faglegra málefna og Jón Viðar Þorsteinsson jonvidar@fme.is vegna tæknilegra málefna.