This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki


Fjármálaeftirlitið vistar Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, en nefndin fjallar um ágreining viðskiptamanna við lánastofnanir (t.d. viðskiptabanka eða sparisjóð), verðbréfafyrirtæki, eða dótturfyrirtæki þessara fjármálafyrirtækja. Einnig fjallar nefndin um ágreining um yfirfærslur á milli viðskiptareikninga milli landa. Fjármálaeftirlitið tekur við málskotum viðskiptamanna og sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.

Samþykktir nefndarinnar

Staðsetning og póstfang

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki,

Suðurlandsbraut 32,

108 Reykjavík

Sími: 525 2700

Fax: 525 2727


Tölvupóstur: urskfjarm@fme.is

Opnunartími afgreiðslu er frá kl. 9:00 til 16:00 virka daga.

 

Hverjir geta leitað til nefndarinnar?

Viðskiptamenn sem eru í samningssambandi við viðkomandi fjármálafyrirtæki geta snúið sér til nefndarinnar. Fjármálafyrirtæki eiga að kynna viðskiptamönnum með tryggilegum hætti möguleika þeirra á að skjóta málum til nefndarinnar. Það eru viðskiptamenn hverju sinni sem hafa val um það hvort þeir leiti til nefndarinnar, þeir þurfa m.ö.o. ekki samþykki fjármálafyrirtækis fyrir málskoti.

Efst á síðu



 


Hvernig á að óska eftir úrskurði

Fylla þarf út sérstakt eyðublað sem hægt er að nálgast með því að smella hérna
(Málsskotseyðublað (Acrobat); Málsskotseyðublað (Excel 97)). Einnig er hægt að nálgast eyðublaðið á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, Sambands íslenskra viðskiptabanka, Sambands íslenskra sparisjóða, Samtaka verðbréfafyrirtækja, Sambands lánastofnana, hjá einstökum félögum sem eru aðilar að framangreindum samböndum eða Neytendasamtökunum. Eyðublaðinu skal skila eða senda í pósti til skrifstofu Fjármálaeftirlitsins.

Sé viðskiptamaður einstaklingur greiðir hann málskotsgjald, kr. 5.000, um leið og hann afhendir Fjármálaeftirlitinu málskot til úrskurðarnefndar. Málskotsgjald þetta fær viðskiptamaður endurgreitt við afhendingu úrskurðar ef krafa hans er að hluta eða öllu leyti tekin til greina. Heimilt er að endurgreiða viðskiptamanni málskotsgjald falli mál niður með samkomulagi viðskiptamanns og fjármálafyrirtækis.

Sé viðskiptamaður einstaklingur í atvinnurekstri, og kvörtun hans tengist atvinnurekstri hans, greiðir hann málskotsgjald er nemur kr. 15.000 um leið og hann afhendir Fjármálaeftirlitinu kvörtun. Að öðru leyti gilda ákvæði 2. mgr. hér á undan um einstakling í atvinnurekstri. Sé viðskiptamaður lögaðili greiðir hann málskotsgjald er nemur kr. 30.000 um leið og hann afhendir Fjármálaeftirlitinu kvörtun. Málskotsgjald þetta fær hann endurgreitt við afhendingu úrskurðar ef krafa hans er að hluta eða öllu leyti tekin til greina.

Ekki er tekið við málskoti nema málskotsgjald sé greitt á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, eða það sent með málskotinu.

Mikilvægt er að málskotinu fylgi gögn sem upplýsi um þann ágreining sem fyrir hendi er og afstöðu aðila þ. á m. röksemdir fyrir kvörtun, sjónarmið málskotsaðilans o.s.frv. sjá nánar málskotseyðublaðið, þannig að unnt sé að úrskurða í málinu. Góður undirbúningur auðveldar störf nefndarinnar og flýtir fyrir lyktum málsins. Nauðsynlegt er að þeir sem óska eftir úrskurði nefndarinnar kynni sér nánari upplýsingar um nefndina og störf hennar sem fram koma hér á eftir.

Efst á síðu


 

 
 
 

Hverjir standa að nefndinni


Úrskurðarnefndin starfar samkvæmt samkomulagi viðskiptaráðuneytisins, Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, Sambands íslenskra sparisjóða  og Neytendasamtakanna frá 8. júní 2000.

Hvernig vinnur nefndin?


Eftir móttöku kvörtunar sendir nefndin gögn sem kvörtuninni fylgja til viðkomandi fjármálafyrirtækis og annarra sem málið kann að varða sérstaklega svo sem ábyrgðarmanna.

Hafi fjármálafyrirtæki ekki sent mótmæli eða athugasemdir til nefndarinnar innan þriggja vikna frá móttöku kvörtunar má afgreiða málið á grundvelli framlagðra gagna nema nefndin samþykki beiðni fjármálafyrirtækis um lengri frest.

Kvörtun má draga til baka á hvaða stigi sem er.  Málið fellur niður ef fjármálafyrirtæki og viðskiptamaður ná samkomulagi um lausn þess.
Nefndin tekur ákvörðun um hvaða gagna þurfi að afla áður en úrskurður verður felldur.  Nefndin getur kallað aðila til skýrslugjafar.  Mæti aðili ekki án löglegra forfalla eða neitar að gefa nefndinni þær upplýsingar sem óskað er, getur nefndin vísað málinu frá eða afgreitt málið á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja. 

Nefndin getur einnig óskað eftir sérstökum sérfræðiálitum telji hún þess þörf.  Almennt skal við það miðað, að viðkomandi fjármálafyrirtæki afli þeirra sérfræðiálita, sem þörf er talin á að aflað verði.  Nefndin getur þá ákvarðað að afla slíkra gagna án milligöngu málsaðila og tekur að öðru leyti ákvörðun um gagnaöflun.

Úrskurður nefndarinnar skal liggja fyrir innan fjögurra vikna frá því að öll gögn tengd viðkomandi kvörtun bárust nefndinni.

Niðurstaða nefndarinnar skal send aðilum með staðfestum hætti innan 10 daga frá því úrskurður er kveðinn upp.  Viðskiptamaður skal um leið upplýstur um, að hann geti lagt málið fyrir dómstóla eða aðra aðila sé um það að ræða.  Almennt skal veita 4 vikur frá útsendingu til að fullnægja úrskurði.

Nefndarmaður er vanhæfur til meðferðar máls og skal víkja sæti eigi vanhæfisreglur 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við um hann. Nefndarmaður getur ávallt sagt sig frá máli telji hann sig vanhæfan.

Takmörk eru sett fyrir heimild til endurupptöku mála sem undirstrika mikilvægi þess að vandað sé til málskots hverju sinni. Samkvæmt samþykktum nefndarinnar getur nefndin tekið ákvörðun um að mál sem úrskurðað hefur verið í af nefndinni skuli tekið fyrir aftur ef fram koma nýjar upplýsingar sem eru þess eðlis að hefðu þær legið fyrir við uppkvaðningu úrskurðar gætu þær hafa leitt til annarrar niðurstöðu.

Úrskurður nefndarinnar hindrar ekki umfjöllun dómstóla síðar.

Efst á síðu



Hverjir sitja í nefndinni?

Í nefndinni sitja fimm nefndarmenn sem skulu vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og ætíð hafa haft forræði bús síns.  Formaður og varaformaður skulu auk þess uppfylla hæfisskilyrði héraðsdómara. Skulu tveir nefndarmenn skipaðir sameiginlega af fjármálafyrirtækjum sem aðild eiga að nefndinni, tveir af Neytendasamtökunum og einn af viðskiptaráðherra sem jafnframt er formaður nefndarinnar.  Varamenn eru skipaðir með sama hætti og skulu uppfylla sömu hæfisskilyrði.  Varamaður formanns er formaður í forföllum hans.
Nú sitja eftirtaldir  í nefndinni:


Aðalmenn:
Guðjón Ólafur Jónsson hrl., formaður, fulltrúi viðskiptaráðuneytis,
Geir Arnar Marelsson lögfr., fulltrúi Neytendasamtakanna,
Hildigunnur Hafsteinsdóttir hdl., fulltrúi Neytendasamtakanna,
Grétar Grétarsson, fulltrúi fjármálafyrirtækja,
Guðlaug B. Ólafsdóttir, fulltrúi fjármálafyrirtækja.


Varamenn:
Auður Inga Ingvarsdóttir hdl., fulltrúi viðskiptaráðuneytis,
Jóhann Tómas Sigurðsson, fulltrúi fjármálafyrirtækja,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögfr., fulltrúi Neytendasamtakanna,
Jón Magnússon hrl., fulltrúi Neytendasamtakanna,
Helgi Sigurðsson hrl., fulltrúi fjármálafyrirtækja.

Samantekt úrskurða 2001

Samantekt úrskurða 2002

Samantekt úrskurða 2003

Samantekt úrskurða 2004

Samantekt úrskurða 2005

Samantekt úrskurða 2006

Samantekt úrskurða 2007

Samantekt úrskurða 2008

Samantekt úrskurða 2009

 

Almennur fyrirvari og höfundarréttur

Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykjavík - Sími: +354 525 2700 - Bréfsími: +354 525 2727 - Tölvupóstur: fme@fme.is
Opið
virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli