This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

Mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra aðila

Hér er að finna verklag við mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra aðila.

 

 

Fjármálaeftirlitið ákveður að teknu tilliti til umfangs á starfsemi viðkomandi eftirlitsskylds aðila þ.á m. starfsleyfis, reksturs og markaðshlutdeildar hvort óskað verður eftir umsögn ráðgjafarnefndar um hæfi viðkomandi stjórnarmanns. Hér eru kynntar starfsreglur ráðgjafarnefndar.

 

 

Þegar umsagnar er krafist munu stjórnarmenn verða kallaðir til fundar við ráðgjafarnefndina til viðtals um þau efnisatriði sem varða þekkingu og viðhorf stjórnarmannsins á starfsemi eftirlitsskylda aðilans og ábyrgð stjórnar. Í sérstökum viðauka með starfsreglum ráðgjafarnefndar eru dæmi um viðtalsþætti vegna mats á hæfi stjórnarmanna í fjármálafyrirtækjum. Vakin er athygli á því að viðaukinn gildir aðeins fyrir stjórnarmenn í fjármálafyrirtækjum.

 

 

Hér fyrir neðan eru spurningalistar sem framkvæmdastjórar og stjórnarmenn eftirlitsskyldra aðila verða að svara skriflega þegar þeir taka við störfum hjá þeim fyrirtækjum sem um ræðir, við veitingu nýrra starfsleyfa og eftir atvikum við breytingar á þegar veittum starfsleyfum. Sérstakur spurningalisti gildir fyrir framkvæmdastjóra og stjórnarmenn lífeyrissjóða en sameiginlegur listi gildir fyrir fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög og vátryggingamiðlanir.

 

 

Hér fyrir neðan eru yfirlýsingar sem framkvæmdastjórar og stjórnarmenn eftirlitsskyldra aðila verða að undirrita.

 

Almennur fyrirvari og höfundarréttur

Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykavík - Sími: +354 520 3700 - Fax: +354 520 3727 - E-mail: fme@fme.is
Opið virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli