This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum


Fjármálaeftirlitið vistar Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum, en nefndin fjallar um ágreining um bótaskyldu, þar með talið sök og sakarskiptingu milli neytenda og vátryggingafélags. Fjármálaeftirlitið tekur við málskotum neytenda, sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.

Samþykktir nefndarinnar

Staðsetning og póstfang
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum,
Suðurlandsbraut 32,
108 Reykjavík
Sími: 525 2700
Fax: 525 2727

Tölvupóstur: urskvatr@fme.is

Opnunartími afgreiðslu er frá kl. 9:00 til 16:00 virka dag.

 

Hverjir geta leitað til nefndarinnar - Tímafrestur

 Sá aðili sem skýtur máli sínu til nefndarinnar nefnist málskotsaðili. Málskotsaðili getur verið vátryggingartaki, vátryggður, þar á meðal meðvátryggður, rétthafi bóta, tjónþoli og hver sá annar er telur sig eiga rétt til bóta úr vátryggingu eða á annarra hagsmuna að gæta vegna vátryggingarsamnings samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga. Málskot verður að fullnægja skilyrðum 1. mgr. 3. gr. Um að ágreiningurinn heyri undir starfssvið nefndarinnar. Vátryggingafélög skulu kynna viðskiptavinum sínum með tryggilegum hætti möguleika þeirra á að skjóta málum til nefndarinnar.

Athygli er vakin á því að áður en málskotsaðili getur leitað til nefndarinnar skal hann hafa lagt kröfur sínar fyrir hlutaðeigandi vátryggingafélag. Málskot verður að hafa borist nefndinni innan árs frá því að málskotsaðili fékk skriflega tilkynningu vátryggingafélags um að kröfu hans væri hafnað. Bregðist vátryggingafélag ekki við skriflegri kröfu málskotsaðila innan þriggja vikna frá móttöku hennar er málskotsaðila heimilt að leita með málið beint til úrskurðarnefndar. Þegar sérstaklega stendur á er nefndinni heimilt að taka mál til umfjöllunar þrátt fyrir að framangreindu skilyrði sé ekki fullnægt.

Hvernig á að óska eftir úrskurði?


Fylla þarf út sérstakt eyðublað sem hægt er að nálgast með því að smella hérna
(Málsskotseyðublað (Acrobat); Málsskotseyðublað (Excel 97)). Eyðublaðið þarf að prenta út og skila eða senda í pósti á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, skrifstofu Sambands íslenskra tryggingafélaga, hjá vátryggingafélögum eða Neytendasamtökunum.

Málskotsgjald er kr. 6.000,-. Ekki er tekið við málskoti nema gjaldið sé greitt á skrifstofu Fjármálaeftirlitsins, eða það sent með málskotinu. Gjaldið fæst endurgreitt falli mál að hluta til eða öllu leyti málskotsaðila í vil.

Mikilvægt er að málskotinu fylgi gögn sem upplýsi um þann ágreining sem fyrir hendi er og afstöðu aðila þ. á m. röksemdir fyrir kvörtun, sjónarmið málskotsaðilans o.s.frv. sbr. nánar málskotseyðublaðið, þannig að unnt sé að úrskurða í málinu. Góður undirbúningur auðveldar störf nefndarinnar og flýtir fyrir lyktum málsins. Nauðsynlegt er að þeir sem óska eftir úrskurði nefndarinnar kynni sér nánari upplýsingar um nefndina og störf hennar sem fram koma hér á eftir.

Hverjir standa að nefndinni?

Úrskurðarnefndin starfar samkvæmt samkomulagi viðskiptaráðuneytisins, Neytendasamtakanna og Sambands íslenskra tryggingafélaga. Úrskurðarnefndin tók til starfa árið 1994. Samþykktir nefndarinnar voru birtar með auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 336/1996, en þar er kveðið á um störf nefndarinnar.

Um hvað fjallar nefndin?


Nefndin fjallar um ágreining varðandi bótaskyldu, þ.m.t. sök og sakarskiptingu milli neytenda og vátryggingafélags, sem starfsleyfi hefur hér á landi.

Nefndin fjallar ekki um bótafjárhæðir nema að fengnu samþykki beggja aðila, það er neytandans og viðkomandi vátryggingafélags.

Nefndin fjallar ekki um ágreining sem heyrir undir stjórnvöld og ekki kröfu neytenda sem ekki verður metin til fjár, ekki um breytingar á iðgjöldum vátryggingafélaga, ekki um ágreiningsmál sem er til meðferðar almennra dómstóla eða gerðardóms, eða að mál sé það óljóst, illa upplýst eða krafa aðila það óskýr að það sé ekki tækt til úrskurðar.

Meginverkefni nefndarinnar er að fjalla um ágreining neytanda og innlends vátryggingafélags. Mögulegt er þó að vísa til nefndarinnar ágreiningi við erlent vátryggingafélag, sem starfsleyfi hefur hér á landi. Til þess að nefndin geti tekið slíkt mál til útskurðar þarf hið erlenda vátryggingfélag þó að veita samþykki sitt.

Nefndin úrskurðar hvort ágreiningur aðila heyri undir nefndina og hvort hann sé þess eðlis eða studdur þeim gögnum að unnt sé að úrskurða í málinu. Telji nefndin svo ekki vera vísar hún málinu frá.

 

Hverjir sitja í nefndinni?


Í nefndinni sitja þrír fulltrúar og þrír til vara, sem allir skulu vera löglærðir og valdir til tveggja ára í senn. Stofnaðilar nefndarinnar velja hver sinn aðal- og varamann til setu í nefndinni. Nefndin velur sér formann og varaformann.

Nú sitja eftirtaldir í nefndinni:

Aðalmenn:

Rúnar Guðmundsson hdl., formaður, tilnefndur af viðskiptaráðuneytinu,
Jón Magnússon hrl., tilnefndur af Neytendasamtökunum,
Valgeir Pálsson hrl. tilnefndur af Sambandi íslenskra tryggingafélaga.

Varamenn:

Sigríður Rafnar Pétursdóttir.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.
Þóra Hallgrímsdóttir hdl.

Yfirlit yfir starfsemi

Árið 1994 (sept. - áramóta), 36 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 52,7 % tilvika.
Árið 1995 - 256 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 43,3 % tilvika.
Árið 1996 - 230 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 43,9 % tilvika.
Árið 1997 - 270 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 39,6 % tilvika.
Árið 1998 - 252 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 37,3% tilvika.
Árið 1999 - 312 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 35,5% tilvika.
Árið 2000 - 322 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 36,6% tilvika.
Árið 2001 - 250 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 33,0% tilvika.
Árið 2002 - 292 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 32,0% tilvika.
Árið 2003 - 257 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 30,0 % tilvika.
Árið 2004 - 258 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 35,7 % tilvika.
Árið 2005 - 225 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 32,4% tilvika.
Árið 2006 - 270 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 38,9% tilvika.
Árið 2007 – 242 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 33,5% tilvika.
Árið 2008 – 305 málskot, breyting málskotsaðila í vil í 27,2% tilvika.


Mikil aukning varð á fjölda málskota 2008, sem má rekja til aukinnar þekkingar aðila á lögum um vátryggingarsamninga nr. 30/2004 og heimildar til málskots. Þá höfðu breytingar sem gerðar voru á samþykktum Tjónanefndar vátryggingarfélaganna áhrif á fjölda málskota.

Áberandi er aukning í málskotum til úrskurðarnefndar varðandi aðrar vátryggingar en ökutækjatryggingar, t.d. ábyrgðartryggingar atvinnureksturs (28,2% mála – þar af 9,2% vegna vinnuslysa), málskostnaðartryggingar og ferðatryggingar, heimilis/fjölskyldu- og húseigenda/fasteignatryggingar.

  • Talsvert hefur reynt á eftirfarandi:
  • hugtakið slys, (skyndilegur utanaðkomandi atburður),
  • hvort um innbrot hafi verið að ræða (krafist ummerkja),
  • upplýsingaskyldu vegna persónutrygginga,
  • ábyrgðartakmarkanir, (t.d. stórkostlegt gáleysi, ölvun),
  • skýringu skilmála t.d. um undanskildar áhættur.

Vátryggingafélag hafnaði að hlíta niðurstöðu nefndarinnar í 13 málskotum ársins 2008.

Nefndin birtir alla úrskurði sína á heimasíðu þessari án nafngreiningar aðila sbr. 7. gr. samþykkta nefndarinnar.

Yfirlit yfir úrskurði frá 1994
Samantekt úrskurða 1999
Samantekt úrskurða 2000
Samantekt úrskurða 2001
Samantekt úrskurða 2002
Samantekt úrskurða 2003
Samantekt úrskurða 2004
Samantekt úrskurða 2005
Samantekt úrskurða 2006
Samantekt úrskurða 2007
Samantekt úrskurða 2008
Samantekt úrskurða 2009
Samantekt úrskurða 2010

Almennur fyrirvari og höfundarréttur

Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykavík - Sími: +354 520 3700 - Fax: +354 520 3727 - E-mail: fme@fme.is
Opið virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli