Neytendamál og úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Fjármálaeftirlitið fylgist með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti. Þannig á Fjármálaeftirlitið að stuðla að því að hagsmunir viðskiptamanna fjármálafyrirtækja séu tryggðir og stuðla að stöðugum og trúverðugum fjármagnsmarkaði. Starfsemi þess felst hins vegar aðeins að litlu leyti í samskiptum við neytendur.
Fjármálaeftirlitið leitast við að leiðbeina neytendum um úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum, m.a. hvaða aðili eða aðilar fari með úrskurðarvald eða dómsvald í málum þeirra, en þar er m.a. um að ræða úrskurðarnefndir sem fjalla um ágreiningsmál neytenda gagnvart fjármálafyrirtækjum.