FME og neytendur
Fjármálaeftirlitið fylgist með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti. Þannig á Fjármálaeftirlitið að stuðla að því að hagsmunir viðskiptamanna eftirlitsskyldra aðila séu tryggðir og stuðla að stöðugum og trúverðugum fjármagnsmarkaði. Starfsemi þess felst hins vegar aðeins að litlu leyti í samskiptum við neytendur.
Upplýsinga- og leiðbeiningaþjónusta FME
Upplýsingar og leiðbeiningar fyrir neytendur
er í síma 520 3700
þriðjudaga kl 10-11 og
fimmtudaga kl 14-15.
Einnig er hægt að senda
tölvupóst á fyrirspurn@fme.is