This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

Eftirlit

Meginákvæði um eftirlit Fjármálaeftirlitsins er að finna í III. kafla laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, með síðari breytingum. Auk þess er kveðið á um eftirlit og heimildir Fjármálaeftirlitsins í hinum ýmsu lögum, reglugerðum og reglum um starfsemi á fjármálamarkaði, sem finna má finna undir "Lög og reglur" á valseðlinum hér á síðunni.

Fjármálaeftirlitið hefur mótað sér það hlutverk að veita eftirlitsskyldum aðilum uppbyggilegt og markvisst aðhald og styðja við mótun á skilvirkri og traustri fjármálastarfsemi, þar sem áhersla er lögð á faglegt innra skipulag fjármálafyrirtækja. Fjármálaeftirlitið rækir hlutverk sitt með því að fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur og samþykktir sem um starfsemina gilda og sé að öðru leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.

Fjármálaeftirlitið starfar einnig á grundvelli aþjóðlegra grunnreglna um árangursríkt eftirlit á hverju sviði fjármálamarkaðar. Þessar grunnreglur eru m.a. nýttar við athugun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fjármálastöðugleika aðildarríkja sjóðsins. Á alþjóðavettvangi er sífellt aukin áhersla lögð á að eftirlit með fjármálastarfsemi í einstökum löndum sé samræmt og skilvirkt. Með því er leitast við að stuðla að aukinni samkeppnishæfni fjármálamarkaða.

Almennur fyrirvari og höfundarréttur

Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykavík - Sími: +354 520 3700 - Fax: +354 520 3727 - E-mail: fme@fme.is
Opið virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli