This is alternative content.

Prenta Breyta leturstærðum:

11.08.2010
Undanþága frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf.
Fjármálaeftirlitið hefur haft til skoðunar undanþágubeiðni Framtakssjóðs Íslands slhf. (Framtakssjóður) frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf. (Icelandair), sbr. 100. gr. a laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.), en þann 14. júní 2010 undirrituðu Framtakssjóðurinn og Icelandair áskriftarsamning um nýtt hlutafé í Icelandair þar sem Framtakssjóðurinn skráði sig fyrir 1.200 milljón hlutum á genginu 2,5 krónur eða að söluverði 3 milljarðar.
Lesa meira
27.07.2010
Svar Fjármálaeftirlitsins til umboðsmanns Alþingis
Umboðsmaður Alþingis óskaði hinn 7. júlí sl. eftir sjónarmiðum Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands í tilefni af kvörtun sem honum barst vegna tilmæla sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands sendu til fjármálafyrirtækja
Lesa meira
15.07.2010
Nýtt símanúmer Fjármálaeftirlitsins
Fjármálaeftirlitið er komið með nýtt símanúmer. Nýja númerið er 520 3700. Faxnúmer Fjármálaeftirlitsins breytist einnig og er nú 520 3727.
Lesa meira
11.06.2010
Fjármálaeftirlitið fær aðild að Alþjóðasambandi verðbréfaeftirlita
Aðildarumsókn Fjármálaeftirlitsins að Alþjóðasambandi verðbréfaeftirlita (IOSCO) var samþykkt hinn 9. júní síðastliðinn. Með aðildinni getur Fjármálaeftirlitið skipst á upplýsingum um verðbréfaviðskipti við flestar þjóðir heims innan ramma gildandi laga.
Lesa meira
11.05.2010
Framlenging á undanþágu frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf.
Íslandsbanki hefur óskað eftir 6 mánaða framlengingu á undanþágu frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf. í samræmi við ákvæði 100. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl).
Lesa meira
11.05.2010
Samræmt átak CESR til að bregðast við nýlegum óróa á markaði
Þar sem óvenju mikill óstöðugleiki hefur verið á verðbréfa- og afleiðumarkaði ákváðu meðlimir CESR (Samstarfsnefndar evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði) á fundi sínum í Barcelona síðasta föstudag að vakta þessa markaði betur. Þeir munu sérstaklega skoða möguleg brot á reglum um viðskipti og markaðsmisnotkun með það í huga að samhæfa aðgerðir eftirlitsaðila í hverju landi.
Lesa meira
09.04.2010
Fjármálaeftirlitið boðar til fundar með fjármálafyrirtækjum og útgefendum fjármálagerninga
Fjármálaeftirlitið hefur boðað til fundar með regluvörðum og viðeigandi starfsmönnum fjármálafyrirtækja og útgefenda fjármálagerninga miðvikudaginn 14. apríl nk.
Lesa meira
03.02.2010
CESR birtir yfirlit um skyldur og ábyrgð vörsluaðila verðbréfasjóða
Fjármálaeftirlitið vekur athygli fjárfesta á því að CESR (Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði) hefur birt yfirlit á heimasíðu sinni um skyldur og ábyrgð vörsluaðila verðbréfasjóða
Lesa meira
22.01.2010
Fjármálaeftirlitið veitir Landskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í NBI hf.
Fjármálaeftirlitið hefur veitt Landskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í NBI hf. fyrir hönd Landsbanka Íslands hf. Leyfið er veitt í kjölfar samnings Landsbanka Íslands hf. og íslenska fjármálaráðuneytisins, hinn 15. desember síðastliðinn, m.a. þess efnis að Landsbanki Íslands hf. gæti eignast 18,7% hlut í NBI hf. að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Lesa meira
07.01.2010
Fjármálaeftirlitið veitir ISB Holding ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Íslandsbanka
Fjármálaeftirlitið hefur veitt ISB Holding ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Íslandsbanka fyrir hönd Glitnis banka hf. Leyfið er veitt í kjölfar samnings Glitnis og íslenska fjármálaráðuneytisins, hinn 13. september síðastiðinn, þess efnis að Glitnir gæti eignast 95% hlut í Íslandsbanka að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Lesa meira
30.12.2009
Samningur um yfirlestur og staðfestingu lýsinga og opinbera skráningu verðbréfa
Samkvæmt 138. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti er Fjármálaeftirlitinu heimilt að fela skipulegum verðbréfamarkaði eftirlitsverkefni samkvæmt lögunum. Með vísan til 2. mgr. 52. gr. laga nr. 108/2007 hafa Fjármálaeftirlitið og NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) gert með sér nýjan samning um yfirlestur og staðfestingu lýsinga sem og opinbera skráningu verðbréfa.
Lesa meira
26.11.2009
Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2009 haldinn í dag
Ársfundur Fjármálaeftirlitsins var haldinn í Sólarsal Rúgbrauðsgerðarinnar nú síðdegis. Á fundinum var Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins kynnt. Ræðumenn dagsins voru Gunnar Haraldsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Alan Bones, sendiherra Kanada sem sagði frá fjármálakerfi Kanada og uppbyggingu þess en Kanada var eitt fárra landa sem stóðu nokkuð vel af sér hina alþjóðlegu fjármálakreppu.
Lesa meira
13.11.2009
Fjármálaeftirlitið kannast ekki við kvörtun
Fjölmiðlar hafa undanfarna daga flutt fréttir af eins milljarðs lánveitingu TM til Samherja árið 2006 til að kaupa bréf í TM. Staðhæft hefur verið að um brot á hlutafélagalögum hafi verið að ræða og fylgt hefur sögunni að stjórnarmenn í TM hafi sent kvörtun til Fjármálaeftirlitsins en þar hafi engin niðurstaða fengist.
Lesa meira
10.11.2009
Fjármálaeftirlitið og Ríkisskattstjóri gera samstarfssamning
Fjármálaeftirlitið og Ríkisskattstjóri hafa ákveðið að auka með sér samstarf sem beinist að því að efla samvinnu eftir því sem lagaheimildir standa til og hafa gert með sér samstarfssamning þar að lútandi. Í samningnum felst að Ríkisskattstjóri og Fjármálaeftirilitið munu leggja sig fram við að koma á virkum upplýsingaskiptum sín í milli og skuldbinda sig til að miðla upplýsingum um það sem þau komast að í sýslan sinni og talið er að falli undir starfsvettvang viðkomandi stofnunar þó í samræmi við takmarkanir í lögum um aðgang að gögnum og upplýsingum. Samkvæmt samningnum mun Fjármálaeftirlitið fá aðgang að vissum skrám Ríkisskattstjóra.
Lesa meira
08.10.2009
Athugasemd við frétt Morgunblaðsins
Í frétt Morgunblaðsins í dag er fullyrt að Fjármálaeftirlitið hafi vísað rannsókn á fjárfestingum ákveðinna peningamarkaðssjóða til sérstaks saksóknara og vitnar blaðið til ónafngreindra heimilda í því sambandi. Í fréttinni er enn fremur haft eftir Fjármálaeftirlitinu að rannsóknir þess á peningamarkaðssjóðum standi enn yfir og að vonandi sé niðurstaðna að vænta á næstu vikum.
Lesa meira
29.09.2009
Samningur um staðfestingu tilboðsyfirlita
Samkvæmt 138. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti er Fjármálaeftirlitinu heimilt að fela skipulegum verðbréfamarkaði eftirlitsverkefni samkvæmt lögunum.
Lesa meira
22.09.2009
Til áréttingar vegna umfjöllunar um bankaleynd
Fram hefur komið í fréttum að Fjármálaeftirlitið telji að ákvæði laga um bankaleynd hindri ekki stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í að veita stjórnarmönnum í VR upplýsingar sem þeir hafa falast eftir.
Lesa meira
07.09.2009
Nýtt verklag við skráningu hæfra fjárfesta
Fjármálaeftirlitið vill vekja athygli á nýju verklagi við framkvæmd e. og f. liðar 9. tl. 43. gr. og 53. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti (vvl.), en eins og fram kemur í 1. mgr. 53. gr. vvl. ber Fjármálaeftirlitinu að halda skrá yfir þá einstaklinga og þau litlu og meðalstóru fyrirtæki sem það hefur viðurkennt sem hæfa fjárfesta. Skrá Fjármálaeftirlitsins er aðgengileg útgefendum verðbréfa í þeim tilgangi að bjóða hæfum fjárfestum að vera með í útboði án þess að útbúa lýsingu.
Lesa meira
02.09.2009
Staða lífeyrissjóðanna árið 2008
Á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins er að finna skýrslu um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir árið 2008. Þar er jafnframt að finna excel skjal sem inniheldur talnaefni skýrslunnar.
Lesa meira
14.08.2009
Viðurlagamál hjá Fjármálaeftirlitinu frá áramótum
Rannsóknir á hugsanlegum brotum á lögum á fjármálamarkaði eru stór þáttur í starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Sé talið að um brot sé að ræða getur slíkum málum ýmist lokið með stjórnvaldsviðurlögum, sáttum eða að þeim sé vísað til ákæruvalds. Eftirfarandi er yfirlit yfir þau viðurlagamál sem hefur verið lokið hjá Fjármálaeftirlitinu frá áramótum.
Lesa meira
20.07.2009
Fjármálagerningar gefnir út milli gömlu og nýju bankanna eigi síðar en þann 14. ágúst 2009
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að fjármálagerningar um uppgjör vegna ráðstöfunar eigna og skulda gömlu bankanna til nýju bankanna skulu gefnir út af hálfu aðila eigi síðar en þann 14. ágúst 2009.
Lesa meira
03.07.2009
Fjármálaeftirlitið skipar SPM bráðabirgðastjórn
Með vísan til 100 gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, eins og þeim var breytt með lögum nr. 44/2009, skipar Fjármálaeftirlitið þriggja manna bráðabirgðastjórn sem fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum sparisjóðsins og stjórn og fundur stofnfjáreigenda Sparisjóðs Mýrasýslu hefði ella haft á hendi
Lesa meira
15.06.2009
Endanlegur frestur veittur til að ljúka skilmálum fjármálagernings um uppgjör
Fjármálaeftirlitinu hefur reynst nauðsynlegt að fresta endanlegu uppgjöri á milli nýju bankanna og gömlu bankanna, eins og nánar hefur verið tilgreint í ákvörðunum eftirlitsins þann 6. mars 2009 og 15. maí 2009. Í síðarnefndu ákvörðuninni var sagt að endanleg ákvörðun um frest yrði tekin eigi síðar en í dag.
Lesa meira
12.06.2009
Opnun verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags SPRON hf.
Bráðabirgðastjórn SPRON hefur gert samning við Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf., Strandgötu 3, Akureyri um að taka yfir rekstur og umsýslu þeirra verðbréfa- og fjárfestingarsjóða sem áður voru í rekstri Rekstrarfélags SPRON hf. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. hefur tilkynnt Fjármálaeftirlitinu að það hafi tekið yfir rekstur sjóðanna og að viðskipti með sjóðina hefjist í dag, 12. júní 2009.
Lesa meira
19.05.2009
Fjármálaeftirlitið boðaði útgefendur fjármálagerninga til fundar 15. maí síðastliðinn.
Þann 15. maí sl. héldu starfsmenn Fjármálaeftirlitsins þær Barbara Inga Albertsdóttir og Rut Gunnarsdóttir fund með útgefendum fjármálagerninga á skipulegum verðbréfamarkaði og markaðstorgum fjármálagerninga (MTF). Á fundinn voru allir útgefendur boðaðir.
Lesa meira
18.05.2009
Undanþága frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf.
Fjármálaeftirlitið hefur verið með til athugunar skipan mála í eignarhaldi Icelandair Group hf., með hliðsjón af yfirtökureglum laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.).
Lesa meira
14.05.2009
Fjármálaeftirlitið boðar útgefendur fjármálagerninga til fundar.
Fjármálaeftirlitið hefur boðað útgefendur fjármálagerninga á skipulegum verðbréfamarkaði til fundar á morgun föstudag, 15. maí.
Lesa meira
08.05.2009
Túlkun Fjármálaeftirlitins er varðar almennt útboð verðbréfa
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út túlkun er varðar almennt útboð verðbréfa en um slík útboð er fjallað í 1. tl. 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Túlkunin hefur verið birt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins undir Lög og reglur á fjármálamarkaði
Lesa meira
05.05.2009
Kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins fyrir regluverði færeyskra útgefenda fjármálagerninga
Þann 28. apríl sl. hélt Fjármálaeftirlitið kynningarfund fyrir regluverði færeyskra útgefenda fjármálagerninga. Um var að ræða sambærilegan kynningarfund og haldinn var fyrir regluverði íslenskra útgefenda í nóvember sl. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkur fundur er haldinn fyrir færeyska regluverði.
Lesa meira
30.04.2009
Athugasemd við fréttaskýringu Morgunblaðsins um efnahagsreikning nýju bankanna
Í fréttaskýringu Morgunblaðsins 30. apríl sem birtist undir yfirskriftinni "Bankarnir skreppa saman" er því haldið fram að efnahagsreikningur nýju bankanna muni verða mun lægri en áætlað. Því til staðfestingar er annars vegar vitnað í bráðabirgða stofnefnahagsreikning bankanna þriggja sem birtur var í nóvember á síðasta ári
Lesa meira
24.04.2009
Lýsing á verðmatsferli eigna og skulda nýju bankanna
Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman yfirlit yfir helstu forsendur og aðferðir sem unnið var eftir við verðmat á eignum og skuldum nýju bankanna. Samantektin er gerð til að setja verkefnið í rétt samhengi og útskýra sem best í hverju það felst.
Lesa meira
22.04.2009
Fullnaðarniðurstöður verðmats nýju bankanna liggja nú fyrir
Deloitte LLP lauk í gær verðmati þeirra eigna sem fluttar voru út úr gömlu bönkunum til að mynda efnahag Nýja Kaupþings banka, NBI og Íslandsbanka. Oliver Wyman hefur í dag yfirfarið verðmatið fyrir hvern banka og uppfært úttekt sína. Verðmatsverkefninu er því lokið.
Lesa meira
07.04.2009
Staða vátryggingafélaga í kjölfar falls bankanna
Undanfarnar vikur hefur farið fram á vettvangi fjölmiðla nokkur umræða um stöðu vátryggingafélaga. Borið hefur á því að settar hafa verið fram fullyrðingar sem bera með sér misskilning á sérkennum vátryggingastarfseminnar. Í þessari stuttu grein verður reynt að leiðrétta þennan misskilning með því að svara á almennan hátt tveimur af þeim spurningum sem varpað hefur verið fram.
Lesa meira
06.04.2009
Lækkun á lágmarksverði í yfirtökutilboði BBR ehf. til hluthafa Exista hf.
Þann 6. janúar sl. barst Fjármálaeftirlitinu beiðni um að beita heimild samkvæmt 8. mgr. 103. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.), og lækka lágmarks verð í yfirtökutilboði BBR ehf. í Exista hf. úr kr. 4,62 per hlut niður í kr. 0,02 per hlut (þ.e. verðið sem BBR ehf. greiddi fyrir hvern hlut í hlutafjárhækkun Exista hf. 8. desember 2008), vegna sérstakra kringumstæðna.
Lesa meira
03.04.2009
Rannsóknir á brotum á þagnarskyldu
Rannsóknir Fjármálaeftirlitsins á hugsanlegum brotum tiltekinna fréttamanna á ákvæðum um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki, hafa eðlilega vakið mikla athygli. Hér vegast á mikilsverð grundvallarréttindi þar sem annars vegar er réttur almennings á sem mestum upplýsingum um þau miklu áföll sem við höfum orðið fyrir undanfarna mánuði og hins vegar Stjórnarskrárvarinn réttur á friðhelgi einkalífs.
Lesa meira
03.04.2009
Gunnar Þ. Andersen ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Gunnar Þ. Andersen hefur verið ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Gunnar hefur starfað hjá Tryggingastofnun ríkisins frá 2006, fyrst sem forstöðumaður eftirlits en nú síðast sem framkvæmdastjóri Þróunar- og greiningarsviðs og staðgengill forstjóra.
Lesa meira
30.03.2009
Helstu niðurstöður skýrslu um reglur og framkvæmd á eftirliti með bönkunum
Finnski bankasérfræðingurinn, Kaarlo Jännäri, hefur skilað skýrslu um reglur og framkvæmd á eftirliti með fjármálafyrirtækjum (hjá Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu), en skýrslan er hluti af samkomulagi Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Lesa meira
30.03.2009
Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf.
Þann 9. mars 2009 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf. og skipa skilanefnd fyrir bankann. Skilanefnd bankans tók ákvörðun um að loka bankanum þann dag.
Lesa meira
24.03.2009
Ábendingar og Gjallarhornið
Ábendingar neytenda, sem og ábendingar eftirlitsskyldra aðila og starfsmanna á þeirra vegum, eru mikilvægur og nauðsynlegur þáttur í sérhverju eftirliti. Fjármálaeftirlitinu hafa á undanförnum mánuðum borist fjölmargar ábendingar, sem margar hverjar hafa orðið grundvöllur að frekari rannsóknum.
Lesa meira
24.03.2009
GAM Management hf. fær starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða
Fjármálaeftirlitið hefur þann 23. mars 2009 veitt GAM Management hf., kt. 530608-0690, Skipholti 50d, 105 Reykjavík, starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt 7. tölul. 1. mgr. 4. gr., sbr. 7. tölul. 1. mgr. 3. gr. og 2. - 3. tölul. 1. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Lesa meira
22.03.2009
Frestun innlausna í verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum Rekstrarfélags SPRON hf.
Vegna ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins, dags. 21. mars sl. vegna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON), hefur Fjármálaeftirlitið með vísan til 3. mgr. 27. gr. og 3. mgr. 53. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði ákveðið að fresta tímabundið innlausnum allra verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags SPRON hf.
Lesa meira
21.03.2009
Endurskipulagning stjórnvalda á sparisjóðakerfinu
Stjórnvöld hafa í dag kynnt áform um endurskipulagningu sparisjóðakerfisins í landinu.
Lesa meira
19.03.2009
Fjármálaeftirlitið frestar yfirfærslu innlána Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf.
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að fresta yfirfærslu innlána Straums - Burðaráss fjárfestingabanka hf. til Íslandsbanka hf. vegna tæknilegra vandkvæða. Um er að ræða flókið verkefni sem er tímafrekara en ætlað var. Af þeim sökum er nauðsynlegt að veita rýmri tímafrest til að ljúka yfirfærslu innlána og útgáfu skulda- og tryggingarskjala.
Lesa meira
17.03.2009
Ákvörðun um ráðstöfun innlána Straums - Burðaráss fjárfestingabanka hf.
Fjármálaeftirlitið hefur tekið ákvörðun um ráðstöfun skuldbindinga Straums - Burðaráss fjárfestingabanka hf. á Íslandi vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á Íslandi. Innstæður munu flytjast yfir til Íslandsbanka hf. miðað við stöðu og áunna vexti á yfirtökudegi með ákveðnum takmörkunum tilgreindum í ákvörðuninni.
Lesa meira
16.03.2009
Fjármálaeftirlitið og sérstakur saksóknari setja sér samskiptareglur
Sérstakur saksóknari og settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins undirrituðu 13. mars sl. verklagsreglur til grundvallar samstarfi sínu. Reglurnar hafa það markmið að greiða fyrir upplýsingaflæði milli aðila, stuðla að auknum skilningi á verkaskiptingu aðila og koma í veg fyrir að mál verði rannsökuð samtímis á fleiri en einum stað.
Lesa meira
04.03.2009
Um hlutverk Fjármálaeftirlitsins og verkaskiptingu þess og annarra embætta.
Nokkurs misskilnings virðist hafa gætt í umræðunni frá því að bankarnir þrír féllu um hlutverk Fjármálaeftirlitsins. Með þessum línum leitast höfundur við að útskýra þetta hlutverk og verkaskiptingu milli Fjármálaeftirlitsins og annarra embætta.
Lesa meira
24.02.2009
Verðmat nýju bankanna
Í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins (FME) dags. 9. janúar 2009 kom fram að ekki væri unnt að ljúka verðmati eigna og skulda NBI hf., Nýja Glitnis banka hf. og Nýja Kaupþings banka hf. innan tilgreindra tímamarka upphaflegra ákvarðana
Lesa meira
23.02.2009
Túlkun Fjármálaeftirlitsins á tilkynningar- og birtingarskyldu vegna veðkalla í fjármálagerningum
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út túlkun á tilkynningar- og birtingarskyldu 126. og 127. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, vegna veðkalla í fjármálagerningum.
Lesa meira
10.02.2009
Fjármálaeftirlitið endurnýjar samninga um eftirlitsverkefni við Kauphöll Íslands
Forstjórar Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands hafa endurnýjað yfirlýsingu um eftirlitsverkefni sem Kauphöllin annast fyrir Fjármálaeftirlitið. Þá hafa Kauphöllin og Fjármálaeftirlitið einnig endurnýjað samning um að Kauphöllin taki að sér að annast yfirlestur og staðfestingu lýsinga.
Lesa meira
06.02.2009
Fjármáleftirlitið hefur framkvæmt mat á hæfi 66 framkvæmdastjóra
Fjármálaeftirlitið hóf framkvæmd svonefnds hæfismats á framkvæmdastjórum fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða í lok árs 2005, en slíkt mat hefur verið framkvæmt á vátryggingasviði frá árinu 1999. Þannig hafa 66 framkvæmdastjórar farið í gegnum hæfismat hjá Fjármáleftirlitinu.
Lesa meira
06.02.2009
Ný stjórn Fjármálaeftirlitsins
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, hefur í dag skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins sem hér segir:
Lesa meira
06.02.2009
Fjárvakri - fjármálaþjónustu ehf. veitt innheimtuleyfi
Fjármálaeftirlitið hefur veitt eftirfarandi fyrirtæki innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008: Fjárvakur - fjármálaþjónusta ehf., kt. 521202-2620, Reykjavíkurflugvelli, Reykjavík.
Lesa meira
03.02.2009
Fundir Fjármálaeftirlitsins með erlendum aðilum
Ýmsir aðilar hafa tjáð sig að undanförnu um samskipti Fjármálaeftirlitsins við erlenda aðila. Því hefur verið slegið fram að Fjármálaeftirlitið hafi verið í hlutverki klappstýru og verndað bankana fyrir erlendri gagnrýni.
Lesa meira
02.02.2009
Hvað er að frétta af rannsóknum Fjármálaeftirlitsins?
Það er skiljanlegt að marga þyrsti í að vita meira um rannsóknir á vegum Fjármálaeftirlitsins í aðdraganda og kjölfar falls bankanna þriggja. Þessar línur eru skrifaðar til að veita þær upplýsingar sem mögulegt er innan þess lagaramma sem Fjármálaeftirlitið starfar en sá rammi takmarkar möguleika starfsmanna Fjármálaeftirlitsins til að tjá sig um mál sem þar eru til skoðunar. Þá er einnig sá möguleiki fyrir hendi að opinber umfjöllun um einstök mál á rannsóknarstigi geti spillt rannsóknum eða ónýtt mál fyrir dómi.
Lesa meira
30.01.2009
Álagning stjórnvaldssekta
Fjármálaeftirlitið hefur lagt stjórnvaldssektir á tæplega 30 aðila frá miðju ári 2007 til ársloka 2008. Um er að ræða álagningu stjórnvaldssekta vegna brota á lögum um vátryggingastarfsemi, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti.
Lesa meira
29.01.2009
Verðmat nýju bankanna þriggja
Mati Fjármálaeftirlitsins á eignum og skuldum nýju bankanna miðar vel áfram.
Lesa meira
29.01.2009
Ráðstefna á vegum CESR 23. febrúar 2009
Samstarfsnefnd evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR) heldur ráðstefnu 23. febrúar nk. í París. Ráðstefnan ber heitið "Preparing for the future: where to now for regulation in the field of securities".
Lesa meira
28.01.2009
Umfjöllun Helga Seljan og Kristins Hrafnssonar í Kastljósi um Fjármálaeftirlitið
Í Kastljósi þann 27. janúar fjölluðu þeir Helgi Seljan og Kristinn Hrafnsson um viðskipti Roberts Tchenguiz við Kaupþing. Í umfjölluninni komu fram alvarlegar missagnir um starfsemi Fjármálaeftirlitsins og rakalausar ásakanir og dylgjur sem ekki er hægt að láta ósvarað.
Lesa meira
16.01.2009
Mat á hæfi
Fjármálaeftirlitið hefur það hlutverk samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki að meta hæfi bankastjóra fjármálafyrirtækja. Bankakstjórar nýju bankanna þriggja hafa farið í gegnum mat á hæfi og hafa þeir nú fengið tilkynningu um að þeir hafi staðist matið.
Lesa meira
16.01.2009
Veiting innheimtuleyfa
Fjármálaeftirlitið hefur veitt eftirfarandi fyrirtækjum innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008: Alskil hf., SPRON Factoring hf., Veitu innheimtuþjónustu ehf. og Intrum á Íslandi ehf.
Lesa meira
09.01.2009
Vegna umræðu um rannsóknir á starfsemi bankanna haustið 2008
Að gefnu tilefni vegna umræðu um rannsóknir á starfsemi bankanna haustið 2008 vill Fjármálaeftirlitið taka eftirfarandi fram: Fjármálaeftirlitið hefur síðan um miðjan október sl. rannsakað hvort brotið hafi verið gegn þeim lögum sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með í starfsemi bankanna þriggja sem komust í greiðsluþrot í byrjun þess mánaðar.
Lesa meira
06.01.2009
Fjármálaeftirlitið veitir innheimtuleyfi á grundvelli innheimtulaga nr. 95/2008.
Innheimtulög nr. 95/2008, tóku gildi þann 1. janúar sl. Með lögunum er Fjármálaeftirlitinu falið að veita innheimtuleyfi til aðila sem stunda innheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra og aðila sem kaupa peningakröfur í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfir í atvinnuskyni.
Lesa meira
15.12.2008
Vegna umræðu um skilanefndir
Með lögum nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., var Fjármálaeftirlitinu m.a. veitt heimild til þess að taka yfir vald hluthafafundar og víkja frá stjórn fjármálafyrirtækis. Fjármálaeftirlitinu er jafnframt heimilt, samhliða því sem ákvörðun er tekin um að víkja stjórn fjármálafyrirtækis frá, að skipa því fimm manna skilanefnd er fer með allar heimildir stjórnar samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaga nr. 2/1995
Lesa meira
11.12.2008
Endurskipulagning bankakerfisins
Þessa dagana standa yfir fundir kröfuhafa gömlu bankanna með skilanefndum þeirra. Þar verður meðal annars kynntur ferillinn við endurskipulagningu bankakerfisins, uppskiptingu bankanna og verðmat eigna þeirra.
Lesa meira
25.11.2008
Innheimtulög taka gildi 1. janúar 2009
Innheimtulög nr. 95/2008, taka gildi þann 1. janúar 2009. Með lögunum er Fjármálaeftirlitinu falið að fara með veitingu innheimtuleyfis. Til að mega stunda innheimtu fyrir aðra er sett fram það skilyrði að innheimtuaðila hafi áður verið veitt innheimtuleyfi. Það sama á við um aðila sem kaupir kröfur í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni. Lögmenn, opinberir aðilar, viðskiptabankar, sparisjóðir, aðrar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki geta hins vegar stundað innheimtu án innheimtuleyfis.
Lesa meira
20.11.2008
Kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins fyrir regluverði útgefenda verðbréfa
Þann 18. nóvember sl. hélt Fjármálaeftirlitið kynningarfund fyrir regluverði útgefenda verðbréfa. Fundurinn var vel sóttur en um 50 regluverðir og staðgenglar þeirra mættu til fundarins.
Lesa meira
19.11.2008
Eftirlitshlutverk Fjármálaeftirlits og Seðlabanka
Ástæða er til þess að minna á að lögin um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi voru sett 1998, þegar Davíð Oddsson var forsætisráðherra. Skipulag eftirlitsins var -og er - í samræmi við það sem talin er besta framkvæmd á þessu sviði í markaðshagkerfum Vesturlanda. Þegar lögin voru sett og Fjármálaeftirlitið (FME) stofnað var fylgt fordæmi nágrannaríkja eins og Noregs og Bretlands. Talið var nauðsynlegt að eftirlit með bönkum, sparisjóðum, tryggingafélögum, verðbréfafyrirtækjum og lífeyrissjóðum væri á einni hendi vegna þess að fjármálastarfsemin var ekki lengur í fastmótuðum skorðum eftir tegundum fyrirtækja heldur fór samskonar eða skyld starfsemi fram á vegum þessara fyrirtækja á víxl og mörg þeirra sinntu fjölþættri starfsemi.
Lesa meira
14.11.2008
Stofnefnahagsreikningar fyrir nýju bankana þrjá sem gilda til bráðabirgða
Fjármálaeftirlitið birtir nú stofnefnahagsreikning fyrir Nýja Glitni banka hf., Nýja Kaupþing banka hf. og NBI hf. Um er að ræða bráðabirgðatölur sem háðar eru endurmati sem nú er hafið.
Lesa meira
11.11.2008
Stofnefnahagsreikningar nýju bankanna þriggja
Að gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið (FME) taka fram að þegar ákveðið var, á grundvelli laga nr. 125/2008, um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði, að þrír nýir bankar sem ríkissjóður hafði stofnað skyldu taka yfir hluta af eignum, réttindum og skyldum Landsbanka Íslands hf., Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf.
Lesa meira
05.11.2008
Rannsóknir á vegum Fjármálaeftirlitsins
Vegna umræðu sem átt hefur sér stað um möguleg lögbrot í starfsemi fjármálafyrirtækja vill Fjármálaeftirlitið taka eftirfarandi fram varðandi rannsókn mála.
Lesa meira
04.11.2008
Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna heildsöluinnlána Glitnis banka hf.
Þann 31. október 2008 fékk Fjármálaeftirlitið staðfestingu á því að Glitnir banki hf. hafi ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði tiltekinna heildsöluinnlána í Bretlandi þann 3. október 2008.
Lesa meira
30.10.2008
Greiðsluskylda Tryggingarsjóðs vegna Kaupþings banka hf.
Þann 9. október 2008 var Kaupþing Edge vefsíða Kaupþings banka hf. orðin óvirk. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Kaupþing banki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.
Lesa meira
27.10.2008
Greiðsluskylda Tryggingasjóðs vegna Landsbanka Íslands hf.
Þann 6. október sl. var Icesave vefsíða Landsbanka Íslands hf. orðin óvirk. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Landsbanki Íslands hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.
Lesa meira
22.10.2008
Nýr Kaupþing banki hf. hefur verið stofnaður um innlenda bankastarfsemi Kaupþings banka hf.
Nýi bankinn tekur yfir innlendar eignir Kaupþings til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Kaupþings er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Kaupþings verða opin.
Lesa meira
17.10.2008
Peningamarkaðssjóðir rekstrarfélaga verðbréfasjóða
Fjármálaeftirlitið hefur beint þeim tilmælum til rekstrarfélaga verðbréfasjóða að grípa til aðgerða sem leiða til þess að peningamarkaðssjóðum félaganna verði slitið.
Lesa meira
16.10.2008
Fjárfestingar peningamarkaðssjóða
Af gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið koma því á framfæri að peningamarkaðssjóðir rekstrarfélaga verðbréfasjóða hafa ekki heimild til að fjárfesta í hlutabréfum, hvorki innlendum né erlendum.
Lesa meira
15.10.2008
Nýr Glitnir banki hf. hefur verið stofnaður um innlenda bankastarfsemi Glitnis banka hf.
Nýi bankinn tekur yfir innlendar eignir Glitnis til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Glitnis er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Glitnis verða opin.
Lesa meira
09.10.2008
Nýr Landsbanki Íslands stofnaður um innlenda bankastarfsemi Landsbanka Íslands hf.
Nýi bankinn tekur yfir innlendar eignir Landsbankans til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Landsbankans er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Landsbankans verða opin.
Lesa meira
09.10.2008
Á grundvelli nýsettra laga grípur Fjármáleftirlitið inn í rekstur Kaupþings hf. til að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi á Íslandi
Bankainnlán á Íslandi eru að fullu tryggð, eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir Útibú bankans á Íslandi, þjónustuver, hraðbankar og netbankar eru opnir Aðgerðirnar eru gerðar til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands
Lesa meira
07.10.2008
Á grundvelli nýsettra laga grípur Fjármáleftirlitið inn í rekstur Glitnis til að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi á Íslandi
Bankainnlán á Íslandi eru að fullu tryggð, eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir Útibú bankans á Íslandi, þjónustuver, hraðbankar og netbankar eru opnir Aðgerðirnar eru gerðar til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands
Lesa meira
07.10.2008
Fjármálaeftirlitið takmarkar skortsölu
Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja á markaði og til þess að stuðla að og viðhalda fjármálastöðugleika hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að skilgreina skortsölu hlutabréfa tiltekinna útgefenda sem hegðun andstæða viðurkenndri markaðsframkvæmd. Aðili sem hegðar sér andstætt viðurkenndri markaðsframkvæmd kann að vera fundinn sekur um markaðsmisnotkun, skv. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.
Lesa meira
07.10.2008
Á grundvelli nýsettra laga grípur Fjármáleftirlitið inn í rekstur Landsbankans til að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi á Íslandi
Bankainnlán á Íslandi eru að fullu tryggð, eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir. Útibú bankans á Íslandi, þjónustuver, hraðbankar og netbankar eru opnir. Aðgerðirnar eru gerðar til að tryggja eðlilega bankastarfsemi innanlands.
Lesa meira
06.10.2008
Tímabundin stöðvun viðskipta
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir eru út af Glitni banka hf. Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf., Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka hf., Spron hf. og Exista hf., og teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.
Lesa meira
02.10.2008
Fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitni sjóðum í samræmi við lög og reglur
Af gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið koma því á framfæri að fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitni sjóðum hf. hafa verið í samræmi við reglur sjóðsins og ákvæði laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Lesa meira
01.10.2008
Reglur um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum
Þróun á fjármálaþjónustu á undanförnum árum hefur leitt til myndunar fjármálasamsteypa sem bjóða þjónustu á mismunandi sviðum fjármálamarkaðar og starfa oft þvert yfir landamæri.
Lesa meira
30.09.2008
Viðskipti hafin að nýju með fjármálagerninga Glitnis banka hf.
Í kjölfar fréttatilkynningar og umfjöllunar um breytingar hjá útgefanda, m.a. um samkomulag milli hans og ríkisstjórnar Íslands um að ríkissjóður leggi bankanum til nýtt hlutafé, er það mat Fjármálaeftirlitsins að ekki sé lengur til staðar sama hætta á ójafnræði fjárfesta.
Lesa meira
29.09.2008
Samkomulag um að ríkisjóður leggi Glitni hf. til nýtt hlutafé
Gert hefur verið samkomulag milli ríkisstjórnar Íslands og eigenda Glitnis banka hf. að höfðu samráði við Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið um að ríkissjóður leggi bankanum til nýtt hlutafé.
Lesa meira
29.09.2008
Tímabundin stöðvun viðskipta
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir eru út af Glitni banka hf. sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.
Lesa meira
18.09.2008
Frétt frá Fjármálaeftirlitinu
Vegna frétta af gjaldþroti bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers og mögulegra áhrifa á fjármálakerfi víða um heim, þ.m.t. á Íslandi vill Fjármálaeftirlitið upplýsa um eftirfarandi:
Lesa meira
08.09.2008
Varðandi fyrirspurnir um Finanzas Forex
Fjármálaeftirlitið vill taka eftirfarandi fram vegna fjölda fyrirspurna sem því hefur borist er varðandi fyrirtækið Finanzas Forex:
Lesa meira
03.09.2008
Upplýsingarit um MiFID fyrir neytendur - Að fjárfesta í fjármálaafurðum
Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði (CESR) gaf þann 7. mars sl. út upplýsingarit á ensku fyrir neytendur þar sem fjallað er um áhrif nýrrar evrópskrar lagasetningar á fjármálamarkaðinn en MiFID tilskipunin (e. Markets in Financial Instruments Directive) tók gildi 1. nóvember sl. Í innleiðingarreglugerðinni, nr. 994/2007, eru tilgreindar skyldur fjármálafyrirtækja varðandi skýrsluhald, tilkynningar um viðskipti, gagnsæi á markaði og töku fjármálagerninga til viðskipta auk þess sem hugtök er varða MiFID tilskipunina eru skilgreind.
Lesa meira
14.07.2008
Ný og endurbætt útgáfa af skýrsluskilakerfi Fjármálaeftirlitsins
Ný og endurbætt útgáfa af skýrsluskilakerfinu hefur nú verið sett upp á vefinn. Í nýju útgáfunni hefur m.a. verið tekið tillit til ábendinga og athugasemda við það sem betur má fara frá eftirlitsskyldum aðilum.
Lesa meira
24.06.2008
Reglur um einkaumboðsmenn
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út reglur um einkaumboðsmenn, nr. 572/2008. Reglurnar eru settar á grundvelli 20. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti og tóku gildi 30. maí 2008.
Lesa meira
29.05.2008
Fjármálaeftirlitið og Háskólinn í Reykjavík undirrita samstarfssamning
Fjármálaeftirlitið og lagadeild Háskólans í Reykjavík skrifuðu þann 28. maí sl. undir starfsnámssamning fyrir nemendur lagadeildar.
Lesa meira
28.04.2008
Fjármálaeftirlitið hefur veitt Auði Capital hf. starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki
Fjármálaeftirlitið hefur veitt Auði Capital hf., kt. 650457-0390, Laugavegi 182, Reykjavík, starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki, samkvæmt 5. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Lesa meira
14.04.2008
Fræðslufundir um markaðsmisnotkun fyrir starfsfólk fjármálafyrirtækja
Fjármálaeftirlitið hefur á undanförnum dögum staðið fyrir fræðslufundum um markaðsmisnotkun fyrir starfsfólk stærstu fjármálafyrirtækjanna. Í ljósi þeirra miklu hreyfinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum undanfarnar vikur sem og umfjöllunar þeim tengdum, jafnt í innlendum sem erlendum fjölmiðlum, taldi Fjármálaeftirlitið tilefni til að standa fyrir slíkri fræðslu.
Lesa meira
17.03.2008
Fjármálaeftirlitið birtir útreikninga á seljanleika hlutabréfa
Fjármálaeftirlitið hefur í samræmi við ákvæði 22. gr. reglugerðar nr. 994/2007, um ákvörðun seljanlegra hlutabréfa, reiknað út flotleiðrétt markaðsvirði (flot) fyrirtækja sem tekin eru til viðskipta á skipulögðum verðbréfamarkaði. Útreikningarnir gilda fyrir tímabilið 1. apríl 2008 til 31. mars 2009.
Lesa meira
07.02.2008
Miðlægt geymslukerfi - OAM
Samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, sem gildi tóku hinn 1. nóvember 2007, ber Fjármálaeftirlitið ábyrgð á varðveislu upplýsinga sem birtar eru opinberlega í samræmi við ákvæði VII., VIII. og IX kafla laganna.
Lesa meira
23.01.2008
Góð þátttaka á fundi FME með regluvörðum útgefenda
Þann 22. janúar sl. hélt Fjármálaeftirlitið kynningarfund fyrir regluverði útgefenda. Fundurinn var vel sóttur en um 40 regluverðir og staðgenglar þeirra mættu til fundarins.
Lesa meira
15.01.2008
Staða íslenskra fjármálafyrirtækja
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, fjallaði um stöðu íslenskra fjármálafyrirtækja á fundi hjá félagi um fjárfestatengsl í morgun (15. janúar). Í erindi sínu ræddi Jónas um afkomu og helstu áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja en vegna óróa á alþjóðlegum mörkuðum vegna lausafjárerfiðleika hefur gengi þeirra hefur lækkað einna mest af skráðum félögum á undanförnum mánuðum.
Lesa meira

Almennur fyrirvari og höfundarréttur

Fjármálaeftirlitið - Suðurlandsbraut 32 - 108 Reykavík - Sími: +354 520 3700 - Fax: +354 520 3727 - E-mail: fme@fme.is
Opið virka daga milli kl. 9.00 - 16.00

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli